-
STJÓRNLAGAÞINGIÐ
6. nóvember 2009
Ein af kröfum útifundanna á Austurvelli síðasta vetur og búsáhaldabyltingarinnar var um nýja stjórnarskrá sem sett yrði án afskipta hinna venjulegu stjórnmálamanna, af sérstöku stjórnlagaþingi.
Ég var orðinn smeykur um að í umróti hvunndagsins væri sú krafa hér um bil að gleymast, en nú hefur Jóhanna Sigurðardóttir lagt fram frumvarp um stjórnlagaþingið og samkvæmt frumvarpinu á það að koma saman þann 17. júní næstkomandi.
Þegar ég gúglaði orðið "stjórnlagaþing" kom fyrst upp ræða sem Jóhanna hélt um nauðsyn stjórnlagaþings, en sú ræða var haldin árið 1996.
Fyrir 13 árum.
Betur að þá hefði verið farið að tillögum hennar (og ýmissa fleiri, náttúrlega).
Jóhanna hefur mætt miklum ólgusjó síðan hún varð forsætisráðherra. Hún er augljóslega hvergi nærri jafn vinsæl og óumdeild nú og hún var áður fyrr.
Enda fer henni satt að segja misjafnlega að vera "kallinn í brúnni".
En hvað sem daglegu stjórnmálavafstri líður, þá getur enginn þrætt fyrir að Jóhanna er hugsjónamaður og baráttukona mikil.
Og ef hún einbeitir sér að því að koma hugmyndum um stjórnlagaþing og nýja stjórnarskrá í gegn, þannig að allir Íslendingar hafi sóma að, þá verður orðstír hennar góður þegar frá líður.Skrifa athugasemd
-
ÓDÝRT RÁÐ!
6. nóvember 2009
Við gerum stundum grín að fádæma lélegri söguþekkingu Bandaríkjamanna. Stundum mætti ætla að þeir viti ekki neitt um ekki neitt sem gerðist fyrir meira en andartaki.
En þessi frétt hér bendir til þess að víðar sé pottur brotinn.
Bresku börnin virðast ekki vita öllu meira.
Hitler fótboltaþjálfari? Jæja já ...
Og eiginlega þori ég ekki almennilega að leiða hugann að því hvað íslensk börn vita í raun og veru um söguna, bæði Íslandssögu og mannkynssögu.
Kannski er það miklu minna en við ímyndum okkur.
En það er til ódýrt ráð til að bæta úr skák.
Gefa blessuðum litlu börnunum áskrif að tímaritinu Sögunni allri!Skrifa athugasemd
-
HRESSANDI BJARTSÝNI
5. nóvember 2009
Enginn em ek hagfræðingr.
Það er löngu ljóst.
Því má ljúga að mér nánast hverju sem er í hagfræðilegum efnum og hinum flóknari efnahagsmálum.
Og ég treysti mér ekki öldungis til að hafa ýkja vísindalega skoðun á því hvað var mikið að marka orð Guðmundar Ólafssonar hagfræðings í viðtali í dægurmálaþætti Rásar 2 nú laust eftir klukkan fjögur.
En dæmalaust sem það var gaman og hressandi að heyra bjartsýnina sem einkenndi skoðanir Guðmundar.
Allt í kalda koli hér út af hinum svimandi háu erlendu skuldum?
Hann hélt nú ekki.
Ég mæli með þessu viðtali vilji menn létta sér lund.
Og svo vona ég bara að það sé a.m.k. eitthvað þó nokkuð að marka þetta!Skrifa athugasemd
-
UNDARLEGT ER íSLAND
5. nóvember 2009
Seðlabankinn spáir því nú að kaupmáttarrýrnun á næsta ári verði fimmtán prósent.
Þetta eru náttúrlega ansi ömurlegar fréttir.
Við sem héldum að kannski væru verstu afleiðingar Davíðshrunsins að mestu þegar komnar fram.
En þá koma þessar fréttir.
Og á sama tíma segjast 33 prósent þjóðarinnar vilja kjósa yfir sig einmitt þann flokk sem ber mesta ábyrgð á því hve hörmulega er komið fyrir okkur.
Undarlegt er Ísland.Skrifa athugasemd
-
ÓVÆNT TÓNSKÁLD
5. nóvember 2009
Í nýútkomnum Skírni er sú grein eftir Pál Theódórsson eðlisfræðing um landnám Íslands sem ég minntist á í gær.
En þar er vitaskuld margt fleira athyglisvert efni, þó í fljótu bragði hafi ég fyrst staðnæmst við það sem ég get alls ekki lesið.
Af því ég kann ekki að lesa nótur.
Í tímaritinu er nefnilega að finna nótur að sjö sönglögum við íslensk ættjarðarkvæði.
Þetta eru kvæði eftir Snorra Hjartarson, Hannes Pétursson, Einar Ólaf Sveinsson, Jón Thoroddsen og Þorstein Gíslason.
Tónskáldið kemur aftur á móti svolítið á óvart.
Það er Þorvaldur Gylfason hagfræðingur.
Kannski hef ég misst af einhverju, en ég vissi ekki að hann semdi lög.
Lögin, eins og þau eru skrifuð upp í nótum í Skírni, virka voðalega sannfærandi! En ég kann sem sagt hvorki að lesa nótur né spila svo ég hef ennþá ekki hugmynd um hversu góð lögin eru.
Þótt Þorvaldur hafi hingað til fyrst og fremst verið kunnur fyrir skrif um hagfræði er hann af listrænni fjölskyldu.
Vilmundur bróðir hans orti ljóð milli þess að fást við pólitík. Hinn bróðir hans, Þorsteinn, samdi kvæði milli þess sem hann fékkst við heimspeki.
Og faðir þeirra bræðra, Gylfi Þ. Gíslason, samdi reyndar líka sönglög milli þess sem hann fékkst við pólitík á viðreisnarárunum.
Afi Þorvaldar var svo aftur skáldið Þorsteinn Gíslason ritstjóri, sem orti kvæðin Fyrsta vordægur og Ættjarðarkvæði sem Þorvaldur hefur nú samið lög við.
Allir eru þeir feðgar sem sé hinir snjöllustu menn, og þóttu bráðgerir.
Það má m.a. sjá af skemmtilegri sögu sem sögð var um Gylfa Þ. og á meira að segja að vera sönn - en ekki sel ég það reyndar öllu dýrar en ég keypti.
Nokkru eftir að Þorsteini Gíslasyni og Kristínu Pálsdóttur konu hans fæddist sonur var Kristín með hann úti við þegar kunningjakonu hennar bar að. Hún hafði ekki séð barnið áður.
Konunni leist vel á drenginn og spurði Kristínu hvað hann héti og hvað hann væri orðinn gamall.
Þá kvað við skýrt og greinilega úr barnavagninum þar sem drengurinn lá:
"Ég heiti Gylfi Þ. Gíslason og ég er níu mánaða."Skrifa athugasemd
- « Fyrri
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- Næsta »


















