-
BURT MEÐ ÞESSA GÖMLU DRAUGA!
2. júní 2010
Hvað erum við Íslendingar að borga fyrir að fá hingað
sveit orrustuþotna frá Þýskalandi til að “verja” landið í nokkrar vikur?Þetta er auðvitað eintóm sýndarmennska og engum til gagns, nema kannski þýsku flugsveitinni sem hefur þá eitthvað að dunda við.
En höfum við ekkert annað við peningana okkar að gera en
kosta þessa vitleysu?Og svo datt af mér andlitið þegar ég sá þýsku
orrustuþoturnar koma inn til lendingar.Þarna voru komnar ævafornar amerískar Phantom-þotur, en
þær fóru fyrst í loftið árið 1958 og voru teknar í almenna notkun í bandaríska
flughernum 1960.Þær þóttu liprar í loftinu og urðu eitt af helstu táknum hins
ameríska hernaðarmáttar er kalda stríðið stóð sem hæst. Í Víetnamstríðinu áttu
Phantom-þoturnar sínar “fegurstu” stundir og slógust þá ósjaldan við sovéskar Mig-21 þotur í flugher Norður-Víetnama. Mig-21 voru að sínu leyti tákn hernaðarkrafts Sovétríkjanna.En strax um 1975 komu arftakar Phantom-þotnanna fram á
sjónarsviðið og upp úr 1980 tóku þær að hverfa hratt úr amerískum flugsveitum.
Þar á meðal af Keflavíkurflugvelli en þaðan hurfu Phantom-þoturnar snemma á níunda
áratugnum, eða fyrir rétt tæpum 30 árum.Það kom mér satt að segja í opna skjöldu að Þjóðverjar skuli
enn vera með þetta gamla 50 ára brak í sinni þjónustu. Það er svona eins og að
þeir hefðu enn árið 1960 verið með flugvél Wright-bræðra í fremstu víglínu í flugher
sínum.Alla vega sýnir það ljóslega fram á fáránleikann við þetta
orrustuþotubrölt á Keflavíkurflugvelli að þar skuli aftur vera mættir þessir
gömlu Draugar úr kalda stríðinu.Vitaskuld hefði þó ekki verið neitt meiri tilgangur með þessari "fluggæslu" á Keflavíkurflugvelli þótt Þjóðverjarnir hefðu mætt með allra nýjustu græjur.
Það var bara svo innilega lýsandi fyrir tilgangsleysið með þessu að þeir skuli koma með þetta gamla drasl.
Og má ekki bara hætta þessu alveg? Getum við ekki sett gjaldeyrinn
okkar í eitthvað annað en fjörbrot 50 ára gamalla orrustuþotna? Eða orrustuþotur yfirleitt?
Skrifa athugasemd
-
VERÐUR EINAR KARL HÆSTARÉTTARDÓMARI?
1. júní 2010
Hjördís
Hákonardóttir er að hætta sem dómari við Hæstarétt. Hún var skipuð dómari árið
2006 en það hafði ekki verið heiglum hent fyrir hana að komast í starfið.Fyrst
sótti hún um 2003 en þá þurfti að koma að náfrænda Davíðs Oddssonar, Ólafi
Berki Þorvaldssyni. Björn Bjarnason skipaði Ólaf Börk en var dæmdur fyrir brot
á jafnréttislögum með því að hafa gengið framhjá Hjördísi, sem var samkvæmt
öllum mælikvörðum miklu hæfari en Davíðsfrændi.Björn
kippti sér lítið upp við þann úrskurð, heldur staðhæfði að jafnréttislögin væru
“börn síns tíma”.Næst
sótti Hjördís um 2004 en þá þurfti að koma að einkavini Davíðs, Jóni Steinari
Gunnlaugssyni. Þó var Hjördís metin hæfari en hann til starfsins.Þessa
raunasögu rakti ég síðast hérna.Árið 2006
þorði jafnvel Sjálfstæðisflokkurinn ekki að ganga framhjá Hjördísi og hún slapp
inn í Hæstarétt, þaðan sem hún kýs nú að hverfa – þótt enn gæti hún setið í
nokkur ár.Það
verður forvitnilegt að sjá hver hlýtur stöðuna, og ekki síður hverjir sækja um,
nú þegar er vonandi búið að losa endanlega um fantatök helmingaskiptaflokkanna
á stöðuveitingum ríkisins.En það
var ekki fyrr búið að birta auglýsinguna um hina lausu dómarastöðu en menn
byrjuðu að grínast með það á internetinu að það lægi auðvitað í augum uppi hver
fengi dómaraembættið.Nú,
auðvitað Einar Karl Haraldsson!Ástæðan
fyrir þessum brandara er náttúrlega að það hefur virst vera bróðurpartur af
atvinnustefnu Samfylkingarinnar að sjá svo um að Einar Karl hafi alltaf nóg að
starfa.Ekki
nenni ég að þylja upp allan listann með þeim störfum sem Einar Karl hefur unnið
fyrir íslensku þjóðina en á snærum Samfylkingar undanfarin ár eða misseri.Og ekki
hvarflar heldur að mér að nefna opinberlega þær efasemdir sem fram hafa komið um
að hann sé þvílíkur hæfileikamaður að það sé beinlínis lífsnauðsyn fyrir
íslensku þjóðina að hafa hann á launaskrá sinni.Enda
kemur hann auðvitað ekki til greina í embætti hæstaréttardómara; Einar Karl er
ekki lögfræðingur og það er þrátt fyrir allt vandlega kveðið á um það í lögum
nr. 15 frá 1998 að dómarar við Hæstarétt verði að vera lærðir í lögum.En þessir
brandarar á netinu um að nú hljóti Einar Karl að vera á leið í Hæstarétt segja
sína sögu um dvínandi traust fólks á Samfylkingunni.Ef ég
væri Samfylkingin myndi ég íhuga vandlega minn gang. Það er ekki tilviljun að
svona brandarar koma fram. Þeir kvikna í andrúmslofti sem menn eru um það bil búnir
að gefast upp á að takast á við með öðru en nöpru háði.Samfylkingunni,
sem stofnuð var með það háleita markmið að verða einskonar siðbótarflokkur í íslensku
samfélagi, hlýtur að svíða það sárt að nú hneigist fólk til að líta svona á
hana.Sem hvert
annað bandalag framapotara og stöðukróka. Og gætu verið ný fantatök í
uppsiglingu?Það er
auðvitað ekki of seint að snúa af þessari leið. Við gætum sagt að Samfylkingin
sé núna í hringtorginu. Leiðin til baka er greið – en þá þarf líka að beygja
inn á braut siðbótarinnar aftur, og það fyrr en síðar.Skrifa athugasemd
-
OPIÐ BRÉF TIL ÖSSURAR SKARPHÉÐINSSONAR
31. maí 2010
Sæll Össur.
Þú hefur að sjálfsögðu frétt af nýjustu afreksverkum Ísraela
þegar fjöldi manns féll í valinn í skotbardaga um borð í skipi, sem var að flytja
varning til hinna innikróuðu Palestínumanna á Gaza.Þótt enn sé nokkuð óljóst hvernig þetta vildi til, þá er
deginum ljósara að harðneskjuleg framganga Ísraels gegn Palestínumönnum fyrr og
síðar á hina raunverulegu sök á þessum atburðum.Í mörg ár og áratugi hafa Ísraelar gengið sífellt lengra í
hörku, glæpum og ofbeldi gegn Palestínumönnum í trausti þess að þeir nytu ekki
aðeins stuðnings Bandaríkjamanna, heldur líka vinaþjóða sinna á Vesturlöndum.Nú þykir mér, sem þegn á Íslandi, vera nóg komið.
Ég vil ekki lengur hafa stjórnmálasamband við Ísrael.
Og ég trúi því ekki að þú viljir heldur hafa neitt saman við
þetta glæparíki að sælda.Ég fer því fram á það við þig, sem starfsmann íslensku þjóðarinnar,
að þú slítir þegar í stað stjórnmálasambandi okkar Íslendinga við Ísraela.Ég fullyrði að það myndi njóta stuðnings yfirgnæfandi meirihluta íslensku þjóðarinnar.
Slík aðgerð getur lagt nokkuð stórt lóð á vogarskálarnar
til að sýna ofbeldisöflunum í Ísrael fram á að þolinmæði fólks hér og á
Vesturlöndum gagnvart níðingshætti þeirra er þrotin.Með bestu kveðju, o.s.frv.
Skrifa athugasemd
-
MUNU ANARKISTARNIR PASSA ALÞINGISHÚSIÐ?
31. maí 2010
Lögreglumenn eru að fara að mótmæla við Alþingishúsið.
Þá hlýtur að verða kallað á anarkistana til að passa húsið.Skrifa athugasemd
-
JÁTNING
31. maí 2010
Hafi einhver lesið það sem ég hef skrifað í DV og hér á Trésmiðjuna
undanfarið, þá veit sá hinn sami að ég var ekki beinlínis í hópi stuðningsmanna Besta flokksins
fyrir kosningarnar.Mér fannst töluvert vandræðalegt hvernig flokkurinn breyttist á
endasprettinum frá því að vera grínframboð, sem virtist í upphafi ekki hafa
annan en þann göfuga tilgang en hæðast að staðnaðri orðræðu gömlu flokkanna, yfir í eitthvað
helstil óljóst nýsköpunarafl – sem setti þó ekki fram neina alvöru stefnu.Og ég er svo gamaldags að mér finnst best að flokkar hafi stefnu, jafnvel Besti flokkurinn.
Stór hluti kjósenda í Reykjavík reyndist ósammála mér og
kaus Besta flokkinn í hrönnum. Og þá er bara að taka því, og líta á björtu
hliðarnar!Innan Besta flokksins er vissulega margt gott fólk, sem ég
efast ekki um að eigi sumt töluvert meira erindi í pólitík en málfundavélar
flokkakerfisins.Ekki þarf að taka fram að vitaskuld er alltof snemmt að spá
nokkru um hvernig Besti flokkurinn muni pluma sig í borgarstjórn, og vissulega er
ákveðin hætta á að svo losaralegt stjórnmálaafl geti haft í för með sér nokkuð
losaralega stjórnarhætti.(Það er ekki endilega jákvætt í sjálfu sér, þótt sumir Besta flokksmenn
kunni að telja svo!)En eitt verð ég þó að játa hér er komið: Það var eitthvað ótrúlega
hressandi við að heyra í hádeginu fréttir af viðræðum Besta flokksins og Samfylkingarinnar
um stjórn borgarinnar.Ef fréttirnar hefðu fjallað um hefðbundnar viðræður Sjálfstæðisflokksins
og Framsóknarflokksins, eða Samfylkingarinnar og Vinstri grænna, þá hefði maður
bara haldið áfram að lúpast um með Euroshopper teið sitt, án þess að búast við neinu sérstöku. En þetta var – dare
I say it? – skemmtilegt …Skrifa athugasemd
- « Fyrri
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- Næsta »


















