ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.0° 9m/s E
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

HVERJIR ERU FRÍMÚRARAR?

10:08 › 1. september 2010


DV birtir í dag merkilegt bréf sem Ólafur H. Johnson skólastjóri og eigandi menntaskólans Hraðbrautar sendi "bræðrum sínum" í frímúrareglunni. Bréfið snýst um þau mál sem DV skrifaði um í vor og sumar og lutu að fjármálum skólans.

Í örstuttu máli varð, samkvæmt þeim skrifum, ekki betur séð en Hraðbraut væri fyrst og fremst hin mesta auðlind fyrir Ólaf skólastjóra.

Ég hirði ekki um að rekja málið öllu nánar, né heldur sjálft innihald bréfs Ólafs til "bræðra sinna". Lesið bara um málið hér eða í DV í dag. Ólafur fer þá ódýru og auðförnu leið að svara öllum ásökunum bara með því að ekkert sé nú að marka DV, enda taki enginn mark á blaðinu - en hvort tveggja er einfaldlega rangt.

DV hefur staðið best allra blaðanna undanfarin misseri, ekki síst við að skrifa um ýmiss konar undarleg fjármál í kjölfar hrunsins, og afar sjaldan hefur blaðið reynst fara með staðlausa stafi. Áreiðanlega engu oftar en kemur fyrir á hverjum öðrum fjölmiðli, ekki síst ef sá fjölmiðill gerir sér í rauninni far um að skrifa um eitthvað sem máli skiptir, og rannsaka mál frá grunni - en ekki bara birta fréttatilkynningar.

Þannig að mjálm Ólafs um hið vonda blað DV er einmitt bara mjálm.

Það sem er hins vegar merkilegt er að Ólafur skuli hafa fundið sig knúinn til að skrifa "bræðrum sínum" í frímúrareglunni bréf þar sem hann útskýrir sitt mál.

Ólafur H. Johnson hefur aldrei komið í raunveruleg viðtöl um málefni Hraðbrautar. Hann hefur ekki séð ástæðu til að svara að neinu ráði þeim upplýsingum DV sem virðast gefa til kynna að skólinn hans sé hálfgerð fjárplógsstarfsemi fyrir hann sjálfan.

Raunar stærir hann sig beinlínis af því í bréfinu að hafa engu svarað.

Þjóðin, sem borgar brúsann, hefur ekki verið virt viðlits.

En Ólafur sér hins vegar ástæðu til að skýra málið fyrir "bræðrum sínum" í frímúrarareglunni.

Hann metur þá meira en þjóðina sem borgar skólann hans.

Það er út af fyrir sig gott að vita.

Ég vona að "bræður hans" verði voða góðir við hann, og kinki sem ákafast kolli þegar hann grætur undan ofsóknum hins vonda DV.

En þetta varð mér tilefni til að rifja upp sögusagnir um áhrif frímúrarahreyfingarinnar.

Hér þarf maður að fara gætilega, því ef maður fer að fabúlera of mikið um leynileg samsæri frímúrara, þá er stutt í að maður fari að hljóma eins og ofsóknaróður brjálæðingur.

En samt ... skyldi það vera rétt, eins og háværar sögusagnir herma, að afdrif biskupsmálsins 1996, þegar raddir nokkurra hrjáðra kvenna voru þaggaðar niður, svo ekki félli kusk á hvítflibba Ólafs Skúlasonar, hafi ekki síst ráðist af því að hann og allir helstu málsaðilar (fyrir utan konurnar!) hafi verið frímúrarar?

Væri hægt að fá upplýsingar um hvaða prestar og hvaða ráðamenn, sem höfðu eitthvað með málið að gera, sátu saman í frímúrarareglunni?

Þar sem menn leggja greinilega svona mikið upp úr áliti "bræðra sinna".

- - - - - -

Viðbót, síðar.

Einn af æðstu mönnum frímúrara hafði samband við mig í tilefni af þessum pistli, og vildi benda mér á að Ólafur Skúlason hefði aldrei verið frímúrari. Því hefði aldrei komið til þess að frímúrarar hefðu farið að reyna að vernda hann sérstaklega.

Þar fyrir utan fullyrti hann að slíkt myndu frímúrarar einfaldlega aldrei gera. Þeir reyndu að styðja við bakið hver á öðrum á uppbyggilegan hátt, en myndu aldrei hylma yfir nokkurs konar afbrotum eða ávirðingum hver annars.









ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.