Ármann Jakobsson hefur skrifað nokkra vel ígrundaða bloggpistla að undanförnu.
Sá nýjasti fjallar um "íslensku bjartsýnina". Ég mæli með honum, sjá hér.
Þetta eru ágætar hugleiðingar.
Menn hafa, eins og Ármann bendir á sveiflast fram og til baka varðandi hver ber sök á hruninu.
Stundum eru það örfáir útrásarvíkingar og stjórnmálamenn, sem eiga alla sökina.
Stundum öll íslenska þjóðin, eða að minnsta kosti sá hluti hennar sem keypti sér flatskjá.
Ármann gengur auðvitað ekki svo langt. En hann bendir þó á að við öllum verðum að horfast í augu við hegðun okkar meðan "góðærið" stóð sem hæst.
Blogg
HVERJUM AÐ KENNA?
09:46 › 31. ágúst 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





