22:53 › 27. ágúst 2010
Í tilefni af því hvað Karl Sigurbjörnsson á erfitt með að kveða skýrt að orði um að hann trúi konunum sem bera sakir á Ólaf heitinn Skúlason (sjá hér), þá hef ég nú endurritað trúarjátninguna, svo hún hæfi honum.
Hún byrjar nú svona:
"Ég rengi ekki tilveru Guðs föður, skapara himins og jarðar. Mér finnst trúverðug sagan um Jesú Krist, hans einkason ..."
Og svo framvegis.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
