Það er langt síðan það fóru að berast fréttir um sællífi þeirra sem sitja í slitastjórnum gömlu bankanna.
Þeir eru hin nýja yfirstétt, eins og það hefur oft verið orðað.
Þegar fólk kvartar, þá er gjarnan bent á það að það séu "erlendir kröfuhafar" sem borgi laun slitastjóranna og skiptastjóranna og hvað þetta heitir allt saman.
Ekki er það nú rétt í öllum tilfellum.
Landsbankinn gamli er enn í eigu ríkisins, við hljótum að borga laun slitastjóranna þar.*
Og ég á bágt með að trúa því það mundi ekki líka koma okkur betur ef slitastjórar hinna bankanna fengju mannsæmandi laun.
Mannsæmandi, en ekki þau ofurlaun sem þeir eru á núna.
Tvær þrjár milljónir á mánuði, hið minnsta, virðist vera, og allt upp í rúmar sjö milljónir á mánuði, í tilfelli Steinunnar Guðbjartsdóttur formanns slitastjórnar Glitnis gamla.
Ekki veit ég hvað slitastjórn Glitnis gerir sér í raun og veru vonir um að fá á endanum mikinn pening út úr Jóni Ásgeiri Jóhannessyni.
En það verður að vera eitthvað umtalsvert, bara til að eiga fyrir laununum hennar næstu misserin!
Umfram allt er það auðvitað ósiðlegt með öllu að í rústum bankakerfis, sem hrundi til grunna, séu hrægammar að störfum.
Heimili eru í rúst vegna þessara banka, og það fólk sem tekur að sér að hreinsa til í rústunum á vissulega að fá mannsæmandi laun.
En ekki maka krókinn, og mynda nýja yfirstétt sem verður jafn hátt yfir almenning hafinn, og útrásarvíkingarnir vorum hér fyrir fáeinum árum.
- - - - -
* Viðbót. Það var vitaskuld ekki rétt hjá mér að GAMLI Landsbankinn væri í eigu ríkisins. Vilhjálmur Þorsteinsson benti mér snöfurlega á það, svomælandi:
"Smá pedantík: "Landsbankinn gamli er enn í eigu ríkisins, við hljótum að borga laun slitastjóranna þar." Nei, gamli Landsbankinn er í eigu kröfuhafa eins og hinir bankarnir. En NÝI Landsbankinn er að mestu í eigu ríkisins, enda var ekki nóg af eignum í þrotabúi þess gamla sem kröfuhafar gátu lagt með sér inn í hinn nýja. (Allar eignir gamla LÍ munu fara til innistæðueigenda og annarra forgangskröfuhafa; almennir kröfuhafar fá að öllum líkindum ekkert úr Landsbankanum.) Þetta er NB öðru vísi í tilfelli (nýja) Arion og (nýja) Íslandsbanka; kröfuhafar eiga meirihluta þeirra beggja."
Ég held þetta breyti þó ekki þeirri tilfinningu, sem pistillinn er sprottinn úr, og breyti honum því ekki.
Blogg
HRÆGAMMAR Í RÚSTUNUM
13:37 › 27. ágúst 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
