Getur Karl Sigurbjörnsson ekki komist skýrt og afdráttarlaust að orði?
Fjölmiðlar hafa lýst því yfir að "biskup trúi konunum" sem ásökuðu Ólaf Skúlason.
Jahérna, hvílík náð sem hann sýnir þeim!
Það hefur bara tekið hann 14 ár að komast að þessari niðurstöðu!
Nema hvað, ótrúlegt nokk - hann hefur reyndar aldrei lýst því yfir að hann trúi þeim.
Í fréttunum í sjónvarpinu segist hann "ekki rengja" frásagnir þeirra.
Og það þýði að frásagnir þeirra séu "trúverðugar".
Frásagnir sem hann kallaði reyndar "sögur" í Kastljósviðtalinu alræmda.
"Sögur", "rengi ekki" - "trúverðugar" ...
Hvað var að því að segja "ég trúi þeim"?
Það var eiginlega með ólíkindum að heyra þetta.
Og hann talaði um að það væri hræðilegt að svona atburðir "hefðu gerst".
Enginn GERÐI. Þetta GERÐIST bara.
Hvern er Karl enn að reyna að vernda með þessum orðhengilshætti?
Og hvernig í ósköpunum datt honum í hug í fréttum Stöðvar 2 að segja fólki að það ætti að muna eftir "góðu stundunum" í prestsstarfi Ólafs Skúlasonar?
Þó hann hafi verið "breyskur".
BREYSKUR?!
Eins og hann væri að segja: "Æ, hann var soldið breyskur, hann Ólafur, hann níddist á konum og börnum."
Hvernig í ósköpunum er hægt að klúðra svona einfaldri afsökunarbeiðni til nokkurra kvenna, sem hann hefur skuldað þeim í 14 ár?
Og til hugrakkrar konu sem hefur reynt í heilt ár að koma því til skila að hún hafi verið misnotuð hrottalega af föður sínum?
"Jæja góða, ég rengi þetta ekki, þetta er bara trúverðugt hjá þér, vænan ..."
Úff, Karl, úff!
En það var kannski ekki við öðru að búast af biskupi, sem hafði hlustað á konu segja frá því að faðir hennar hefði níðst á henni, án þess að fatta einu sinni að taka niður - af sínum heiðurssess á Biskupsstofu - glansmálverkið af þeim sama níðingi.
Blogg
HVERN ER KARL BISKUP AÐ VERNDA?
22:05 › 25. ágúst 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
