Þessi frétt hér er þyngri en tárum taki, rétt eins og allar fréttir af barnaníðingum og kynferðisglæpamönnum.
En málið er verra, og sorglegra en nokkurn hafði órað fyrir.
Ólafur Skúlason lét ekki duga að níðast á konum sem leituðu til hans í vanda. Það segir kannski einhverja sögu um hve varasamir prestar geta verið sem sálusorgarar. Ef konurnar hefðu leitað til sálfræðinga eða félagsfræðinga sem brugðist hefðu við með kynferðislegu ofbeldi, þá hefðu þær verið miklu tilbúnari til að kæra ofbeldisverkin, en raunin var.
Þær hikuðu af því um prest var að ræða. Professional good-guy. Og í beinu sambandi við guð, sem þær trúðu vafalítið á.
En Ólafur Skúlason lét sér þetta ekki nægja, að sögn dóttur hans.
Viðbrögð kirkjunnar við biskupsmálinu á sínum tíma verða ævinlega smánarblettur á henni.
Kristján Björnsson, meðlimur í Kirkjuráði, virðist í fréttinni vera harmi lostinn í fullri einlægni. En orð hans undir lokin eru eftirtektarverð.
"Það er mikill galli að engin kæra skyldi vera borin fram, engin rannsókn gerð þegar Sigrún Pálína [Ingvarsdóttir] bar fram sínar ásakanir. En það var ekkert í reglum kirkjunnar sem gerði henni fært að fara inn í þessi mál."
Þetta er kattarþvottur, séra Kristján. Sigrún Pálína hikaði við að bera fram formlega kærur ekki síst vegna þess að kirkjan lagðist af alefli gegn því. Ef kirkjan hefði haft minnsta áhuga á að leiða sannleikann í ljós í þessu máli, þá hefði hún haft til þess ótal leiðir.
Hún hefði getað skipað sér óhikað undir merki sannleikans - ekki verið að klóra í formsatriðunum í skúmaskotum.
Þetta á kirkjan að viðurkenna hreinskilnislega, líka Kristján Björnsson.
Líka Karl Sigurbjörnsson sem hélt fund með Sigrúnu Pálínu til þess - í reynd - að fá hana til að hætta með þetta vesin í garð biskupsins.
Og nú þarf kirkjan að horfast í augu við að yfirmaður hennar var kynferðisglæpamaður og barnaníðingur. Það er sorglegt, en það er staðreynd. Og hvað á að gera í því? Eru til dæmis ennþá myndir af Ólafi Skúlasyni uppi á vegg á Biskupsstofu?
Blogg
BARNANÍÐINGUR Á BISKUPSSTÓLI
09:24 › 20. ágúst 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
