ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ÞREYTANDI TUSK Í HÉRAÐSDÓMI

09:01 › 17. ágúst 2010


Sko.

Ég hef í rauninni fyllstu samúð með þeim níumenningum sem sífellt er verið að draga fyrir dóm fyrir "árás á Alþingi" í desember 2008.

Einhverjir úr hópnum munu hafa meitt þingvörð eða þingverði, og þeir verða vitaskuld að standa skil á gjörðum sínum, en ákæran um "árás á Alþingi" finnst mér voðalega vitlaus.

Og Alþingi og ákæruvaldið ættu að sameinast um að draga þá vitleysu til baka.

En ég verð að segja, að þegar sífellt kemur til einhverra ryksinga þegar þessi hópur er fyrir dómara, eins og hér hefur gerst, þá fara nú eiginlega að renna á mann tvær grímur.

Ég hef sagt það áður af þessu tilefni, að máttarvöld héraðsdóms Reykjavíkur ættu að sjá til þess að sem flestir þeirra sem vilja geti verið viðtaddir réttarhöld, bæði þessi og önnur.

En þarf endilega alltaf einhver hálfgerð slagsmál? Ættu ekki allir að vera farnir að kunna rulluna sína nú þegar, bæði mótmælendur og löggan? Og geta gert þetta í sæmilegum friði?

Ég tek það fram að ég hef svosem engar heimildir um upphaf þessara ryskinga nú. Stundum áður hefur löggan vissulega sýnt óþolinmæði og jafnvel fruntaskap. En ég á samt dálítið bágt með að trúa því að laganna verði fái bara alltaf óstöðvandi blod paa tanden þegar þeir sjá akkúrat þennan hóp.

Og fari ósjálfrátt að munda kylfurnar!

Þetta stöðuga tusk við lögregluna af þessu tilefni gerir alla vega lítið til bæta málstað níumenninganna.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.