ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

NÚ ER OF LANGT GENGIÐ!

07:44 › 17. ágúst 2010


Nú hefur yfirstjórn RÚV gengið of langt.

Látum vera þótt Spaugstofan hafi verið tekin af dagskrá. Þótt ég hafi persónulega verið mikill aðdáandi Spaugstofunnar, og hefði viljað hafa hana áfram á dagskrá, helst ásamt einhverjum öðrum grínistum, þá má út af fyrir skilja þá ráðstöfun að taka hana af dagskrá.

Hún var náttúrlega búin að fá að spreyta sig nokkuð samfellt í 20 ár, og vafalítið var útgerðin dýr.

Þótt sá fjárhagsvandi sem RÚV á við að stríða eigi auðvitað ekki rót að rekja til kostnaðar við Spaugstofuna (rétt að halda því til haga!), þá var slátrun á Spaugstofunni nokkuð augljóst sparnaðarráð.

Þótt óneitanlega sé skrýtið að taka af dagskrá vinsælasta þáttinn í sjónvarpinu.

En nú er búið að skera niður útvarpsþáttinn Orð skulu standa á Rás eitt, og hér hefur yfirstjórn RÚV einfaldlega gengið of langt.

Orð skulu standa er, ef einhver veit það ekki, spurningaþáttur (ekki mjög alvarlegs eðlis) þar sem Hlín Agnarsdóttir og Davíð Þór Jónsson glíma ásamt gestum sínum við spurningar um íslenskt mál sem Karl Th. Birgisson hefur búið til. Og Kalli stjórnar öllu saman af ísmeygilegri kurteisi og fágun.

Á mínu heimili hefur verið hálfgerð helgistund síðdegis á laugardögum, þegar þátturinn er sendur út, einkum hjá kvenpeningi heimilisins. Sjálfum finnst mér þátturinn líka bráðskemmtilegur, þótt ég hafi svosem misst úr þátt og þátt.

Þetta er einfaldlega mjög skemmtilegur og um leið stórfróðlegur þáttur, sem fjallar um fyrirbæri sem skiptir mjög miklu máli - íslenskt mál. Þetta er "gamaldags" útvarp eins og það gerist allra best, engin læti, ekkert vesin, enginn að gefa pizzur eða útdeila plötum vikunnar, ekkert rembingslegt "fjör" og grínið allt á mjög gáfulegum nótum ... þetta er einfaldlega frábær útvarpsþáttur.

Nákvæmlega þannig þáttur sem er ein af helstu réttlætingunum fyrir tilveru Ríkisútvarpsins.

Þáttur sem varla yrði boðið upp á annars staðar.

Ég trúi því ekki að ekki hafi mátt spara einhvers staðar í uppbólginni markaðsdeildinni hjá RÚV, eða yfirstjórninni, til að geta haldið áfram að senda út þennan þátt, sem varla er mjög dýr í framleiðslu.

Þjóðin hefur sýnt RÚV mikið langlundargeð, þótt stofnunin hafi óneitanlega verið svolítið eins og villuráfandi sauður síðustu misserin. Fyrir mína parta hefur það langlundargeðin nú minnkað verulega, þegar teknar eru svona augljóslega rangar ákvarðanir.




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?