ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.8° 6m/s SE
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

BURT MEÐ RÁS TVÖ

19:53 › 17. ágúst 2010


Menningarnótt er yfirvofandi. Umræður hafa skapast um flugeldasýninguna, og hvort réttlætanlegt sé að halda hana í því áferði sem nú ríkir. Það er nú víst búið að útkljá það mál, en mig langar að vekja máls á öðru.

Sennilega hef ég nefnt þetta áður, en það hefur þá verið árangurslaust.

Því mig langar nefnilega til að Rás tvö hætti með "stórtónleika" sína á menningarnótt, eða menningarkvöldi. En eins og endranær verða slíkir tónleikar á dagskrá nú á laugardagskvöldið.

Menningarnótt í Reykjavík var upphaflega mjög notalegt og skemmtilegt fyrirbæri. Hún átti að byggjast á fjölda smá viðburða um allan miðbæinn. Maður gat rekist á leikara að lesa ljóð á kránum, á götuhorni stóð óperusöngvari og söng.

Og það fylgdi Menningarnótt fyrstu árin áberandi lítil drykkja.

Eftir að Rás tvö fór að halda sína "stórtónleika" þá breytti Menningarnótt um svip. Sérstaklega meðan tónleikarnir voru haldnir niðri við höfn. Þá urðu allir viðburðir dags og kvölds bara upptaktur að þessum popptónleikum.

Þetta var eins og hver önnur unglingaskemmtun. Og fylleríið fór vaxandi ár frá ári.

Og sá mórall var enn ríkjandi þótt tónleikarnir flyttust inn á Klambratún.

Nú verða þeir víst á Arnarhóli.

Þá verður þetta aftur nákvæmlega eins og meðan tónleikarnir voru við höfnina. Upptaktur að popptónleikum.

Allt sem var skrýtið, smátt og skemmtilegt fellur í skuggann af tónleikunum. Það verður bara óhjákvæmilega svoleiðis.

Nú eiga tónleikarnir meira að segja að enda á "brekkusöng" eins og á hverri annarri útihátíð.

En einstaklega ömurleg hugmynd! Má ekkert vera sérstakt og öðruvísi? Og jafnvel ... menningarlegt?!

Og svo kemur flugeldasýningin mikla, og síðan getur fylleríið byrjað fyrir alvöru.

Ekki hlakka ég til.

Nei, Rás tvö á að hætta þessu "stór"-tónleikastússi sínu, og láta Menningarnótt aftur í hendurnar á hinu smáa.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.