ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 11m/s WSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ÞREFALDUR SKOLLI HJÁ ÞINGMANNI

10:48 › 16. ágúst 2010


Magnús Orri Schram er þingmaður sem ég hef hingað til veitt fremur litla athygli.

Á því verður nú breyting.

Í sjónvarpsfréttum RÚV heyrði ég hann nefnilega segja svolítið svo sérstakt að ef hann hefði verið að spila golf, þá hefði þetta verið tvöfaldur eða jafnvel þrefaldur skolli.

Til umræðu voru yfirvofandi skattahækkanir ríkisstjórnarinnar. Í "helstinu" fyrir fréttum var boðað að stjórnarþingmanni væri skapi næst að hætta stuðningi við stjórnina vegna skattahækkana. Ekki veit ég tilefni viðtalsins, ég gat ekki fundið að neitt kallaði á viðtal við Magnús Orra Scram á þessum tímapunkti.

En það þarf reyndar ekki alltaf mikið til að Svavar Halldórsson flytji fréttir um skuggalega skattheimtu!!

En í ljós kom sem sagt að Magnús Orri er býsna andsnúinn skattahækkunum, nema bankaskatti. Í stað annarra skattahækkana vildi hann frekar skera niður í rekstri ríkisins.

Gott og vel - það er svo sannarlega ýmislegt sem má að ósekju skera niður í ríkiskerfinu.

Enda verður það vonandi gert - hugmyndir um frekari skattahækkanir eru, skilst manni, skammt á veg komnar.

Á hinn bóginn var vissulega svolítið undarlegt að sjá þingmann ríkisstjórnarinnar lýsa svona fyrirfram andstöðu við ögn hærri tekjuskatta fyrirtækja, auðlindagjald og fleiri skattstofna, sem ekki verður séð að muni lenda af miklum þunga á venjulegum almenningi. Skattar sem eru t.d. töluvert lægri hér en á Norðurlöndunum.

En Magnús Orri, sem er samfylkingarmaður og því einhvers konar jafnaðarmaður, hann var síðan spurður hvað myndi gerast ef stjórnin færi leið óhóflegra skattahækkana, að hans mati.

Og þá kom þetta gullvæga svar, eða hitt þó heldur.

"Mér er skapi næst að segja, ja, ég mun ekki styðja þessa ríkisstjórn, ef hún mun hækka skatta, en slíkur málflutningur er lýðskrum, og óvandaður ..."

Þetta er svona álíka skemmtilegt og að segja: "Mér er skapi næst að segja að þú sért helvítis hálfviti og asni, en slíkt væri dónaskapur og lýðskrum, svo það hvarflar ekki að mér að segja það."

Það er kannski ástæða til að fylgjast betur með Magnúsi Orra ef hann á mörg svona algjör vindhögg í sinni pólitík.








ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.