ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

HVAR VAR GUÐRÚN PÉTURSDÓTTIR?

09:03 › 16. ágúst 2010


Stjórnlagaþingið væntanlega var til umræðu í þættinum Vikulokin á RÚV á laugardaginn var. Það var ágætt yfirlit þó ég skilji enn ekki af hverju þessi undarlegi háttur er hafður á stjórnlagaþinginu.

Fyrst þjóðfundur sem á með einhverjum hætti að ákveða umræðuefni fyrir stjórnlagaþingið, síðan stjórnlagaþingið sjálft sem á aðeins að starfa í tvo mánuði. Og svo tekur Alþingi við og hefur, sýnist mér, tvö ár til að afgreiða það sem stjórnlagaþingið samþykkir.

Af hverju situr ekki bara stjórnlagaþingið sjálft í aðeins lengri tíma, og afgreiðir málið í eitt skipti fyrir öll?

En látum það vera. Ég vona vitaskuld að þetta endi eins og best verður á kosið.

Aftur á móti ætla ég í mestu vinsemd að benda Guðrúnu Pétursdóttur á að haga orðum sínum kannski svolítið gætilegar en hún gerði í þættinum á laugardaginn.

Guðrún hefur verið skipuð yfir einhverja undirbúningsnefnd sem á að sjá um þjóðfundinn, ég kann ekki formlegt starfsheiti hennar.

Ég efast ekki um að hún vinni verk sitt vel og hafi ýmislegt fram að færa við starfið.

Aftur á móti talaði hún í þættinum á laugardaginn eins og stjórnlagaþingið og yfirvofandi stjórnlagabreytingar væru nánast hennar eigin uppfinning. Einhver "við" og jafnvel "ég" ætluðum að gera hitt og þetta, eða höfðum þessa og þessa skoðun.

Hún var ósköp kát og jákvæð, en ég verð að viðurkenna að ég skildi alls ekki hvað hún var að gera þarna.

Stjórnlagaþingið var beinlínis barið í gegn af fólki sem stóð dag eftir dag niðri á Austurvelli, veifaði fánum, barði búsáhöld og lagði sálu sína að veði til að neyða breytingar út úr stöðnuðu og tregu kerfi.

Stjórnmálastéttinni hafði áratugum saman gjörsamlega mistekist að fá fram alvöru breytingar á hinni úreltu stjórnarskrá. Það var fólkið á Austurvelli sem knúði þetta í gegn.

Guðrún Pétursdóttir var ekki þar.

Ég ítreka - ég vona að hún vinni gott starf, og hef engar forsendur til að ætla annað. En hún ætti ekki að tala svona mikið um "sig" og "okkur" sem ætlumst hitt og þetta fyrir.

Hún er starfsmaður fólksins á Austurvelli.




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.