Ég verð æ ósáttari við nafnið Hörpu á nýja tónlistarhúsið við höfnina.
Mér finnst það tilgerðarlegt og asnalegt.
Harpa er algjörlega óíslenskt hljóðfæri - og reyndar eins fjarri íslenskum músíkhefðum og nokkuð getur verið.
Þá meina ég vitaskuld það stóra en þó svo fínhljóma hljóðfæri sem nú kallast harpa.
Af hverju í ósköpunum var húsið ekki skírt Hruni?
Það er stutt, sterkt og öflugt orð og hefur sterka og hefur sterka og öfluga tengingu við músík og einkum dans.
Hér er þjóðsagan um dansinn í hruna.
Auðvitað er þetta skuggaleg saga, sem endar illa - en það var líka skuggalegur hrunadans sem varð til þess að þetta hús var byggt, og endaði með hruni.
Íslenska þjóðin mun þurfa að bera miklar byrðar vegna þessa húss, og af hverju má ekki minnast þess með nafni þess, í stað þess að nafnið eigi að kveikja hugrenningatengsl við eitthvað pempíulegt hörpugutl?
Ég tek það fram að ég er ekki að grínast. Mér finnst í fúlustu alvöru að það eigi að breyta um nafn á húsinu hið bráðasta og skíra það Hruna.
Blogg
AF HVERJU HEITIR HÚSIÐ EKKI HRUNI?
11:54 › 16. ágúst 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
