ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

JÓHANNA! ÖSSUR! Á EINAR KARL EKKI ÖRUGGLEGA AÐ FÁ EITTHVAÐ MEIRA AÐ GERA?

09:52 › 6. júlí 2010


Ég skal fúslega viðurkenna að í vor virtist átakið Inspired by Iceland bæði hressilegt og vel heppnað. Þá hafði bölsýni vegna eldgossins í Eyjafjallajökli og yfirvofandi hruns í ferðamennsku bæst ofan á aðra bölsýni í samfélaginu, og myndbandið fræga virtist manni vera eins og frísklegur gustur inn í þá bölsýni alla.

Maður sætti sig jafnvel við að ríkisstjórnin skyldi endilega þurfa að fela stjórn átaksins í hendur Einars Karls Haraldssonar, en það er að verða ansi fúll brandari að átakið til bjargar heimilunum í landinu snúist einkum um að bjarga heimili Einars Karls, skjaldborgin fræga standi hnarreist um heimili hans en kannski ekki svo ýkja mörg heimili önnur, og að stefna Samfylkingarinnar felist ævinlega fyrst og fremst í að Einar Karl hafi alltaf og ævinlega atvinnu.

En svo fóru að renna á mann tvær grímur. Í fyrsta lagi kom á daginn að myndbandið var ekki eins frumlegt og ég hafði haldið í minni fávisku um myndbönd og auglýsingaheim.

Í raun virðist myndbandið hafa verið verið inspired by Matt ... ekki Iceland.

Og raddir komu fram um að myndbandið og átakið sem því fylgdi væri kannski bara kolrangt hugsað. Sjá til dæmis um þær efasemdir hér.

Nú hefur þeim röddum fjölgað sem telja að átakið hafi misheppnað frá upphafi, og þótt hundruðum milljóna hafi verið kastað í það á örskömmum tíma, þá sé ekki víst að það skili nokkrum raunverulegum árangri.

Þessa skoðun hefur t.d. sett fram Egill í Brimborg, sem er ekki kunnur að því að fara með neitt fleipur. Sjá hér. Sömu skoðun setti hann fram í lengra máli í sjónvarpsviðtali sem bar fyrir augu mín.

Og nú hefur Sólveig Dagmar Þórisdóttir vakið athygli hér á vinnubrögðunum sem notuð voru við Inspired by Iceland herferðina.

Hinn eilífi augnakarl ríkisstjórnarinnar, Einar Karl, hefur greinilega afsakað sig með því (til dæmis á Eyjunni í morgun, sjá hér) að hratt hafi þurft að vinna - og því hafi ekki unnist tími til að hafa útboð meðal auglýsingastofa um átakið. En sé það nú rétt að einmitt flýtirinn og asinn við átakið hafi leitt til þess að það skili líklega í sjálfu sér litlum árangri, þá er sú mótbára haldlaus.

Og líklega bara til vitnis um það hugarfar flumbrugangs, heimsku og fljótfærni sem kom hér öllu á kaldan klaka árið 2008.

Og birtist í sem "glæsilegastri" mynd í frægu myndbandi Kaupþings - þar sem bankinn stærir sig meðal annars af því hvað hann er fjári flinkur í að "outwitting bureaucracy", eða "snúa á skrifræðið".

Þetta er gjörsamlega sjúkt myndband, þar sem íslenskur banki fullur af idjótum líkir sér við Martin Luther King og Móður Teresu.

Rifjið upp kynnin af því hér.

Æðsti maður Kaupþings var Sigurður Einarsson en svo skemmtilega vill til að sérlegur aðstoðarmaður hans var Einar Karl Haraldsson. Sjá hér.

Kannski Jóhanna eða Össur spyrji Einar Karl á næsta fundi hvort hann hafi ekki bara sjálfur samið handritið við Kaupþings-vídeóið?

Því nú hljóta þau að þurfa að fara að funda með Einari Karli mjög fljótlega.

Því hann er búinn með 700 milljónirnar, er það ekki?

Ríkisstjórnin hlýtur að vera farin að hugsa fyrir því hvar blessaður augnakarlinn á að bera niður næst, landi og þjóð til heilla.

Og ekki síst hvað hann á að fá í kaup.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.