ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.3° 7m/s ESE
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

MIKIÐ GÆFUSPOR FYRIR ÍSLENDINGA

15:40 › 27. júlí 2010


Nú eiga allir að vera kurteisir við þá sem eru á móti Evrópusambandinu.

Alla vega alls ekki styggja þá.

Mér er samt alveg sama. Ég segi það hreint út:

Mér finnst það merkur og góður áfangi að alvöru viðræður um inngöngu Íslands í sambandið séu í þann veginn að hefjast.

Ef af inngöngu verður, getur það orðið mikið gæfuspor fyrir Íslendinga.

Það mun efla stöðugleika í landinu, bæta stjórnsýslu, styrkja velferð og lækka matarverð.

Við vitum nú þegar í stórum dráttum hvernig aðildarsamningur kemur til með að líta út og flestallt í honum verður okkur til hagsbóta. Og án þess að við þurfum að kosta ýkja miklu til.

Það verða vissulega umbreytingatímar fyrir landbúnaðinn og sumar greinar hans munu e.t.v. fara halloka. En aðrar munu þvert á móti taka vel við sér í umhverfi ESB.

Það segir reynsla Svía og Finna, sem ekki þýðir að mæla á móti.

Hvað snertir auðlindir okkar eru engar hættulegar blikur á lofti. ESB ásælist ekki auðlindir okkar - það er hræðsluáróður af ómerkilegustu sort.

Og hananú.

Það eina sem ef til vill gæti orðið til þess að ég greiddi atkvæði gegn væntanlegum aðildarsamningi við ESB væri ef við færum eitthvað sérlega illa út úr sjávarútvegsmálunum.

En til þess eru viðræðurnar að komast að því - og við getum grætt svo margt annað á aðild að ESB að það væri fáránlegt, já, það væri dónaskapur við komandi kynslóðir, að halda ekki áfram viðræðunum af fullri einurð og hörku, í þeirri von og trú að út úr sjávarútvegsmálunum komi eitthvað sem við getum vel sætt okkur við.

Látið nú ekki hræðsluáróður sjálfhverfra hagsmunaaðila draga úr ykkur kjark, gott fólk. Við eigum að ganga stolt til samstarfs við aðrar þjóðir, ekki einangra okkur hér svo smákóngar vorir fái enn um sinn stjórnað leifum herja sinna í rústunum.

Nei, aðildarviðræður við ESB eru mesta tækifæri sem Ísland hefur fengið til að bæta sinn hag í langan, langan tíma.

Notum það tækifæri, glutrum því ekki niður.




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.