Þessi pistill er um fótbolta - og í rauninni aðeins fyrir lengra komna í brasilískum fótboltafræðum.
Eftir að Dunga var rekinn sem þjálfari Brasilíu í kjölfar lélegs árangurs á HM í Suður-Afríku vonuðu margir að nú yrði snúið við blaðinu. Á hilluna yrði lögð sú þrautskipulagða og varnarsinnaða áætlanagerð sem liðið hans Dunga spilaði eftir, og fótboltalistamenn Brasilíu fengju aftur að njóta sín.
Sjálfur vonaði ég að brasilíska knattspyrnusambandið hefði hugrekki til að ráða Leonardo sem þjálfara, en hann óx úr grasi þegar sambafótbolti Tele Santana var í hávegum hafður á níunda áratug síðustu aldar.
Svo fór ekki - sambandinu (CBF) þykir of mikið í húfi til að taka slíka áhættu. Brasilía heldur næstu heimsmeistarakeppni, og þar í landi mega menn ekki til þess hugsa að skelfingin frá 1950 endurtaki sig.
Þá áttu Brasilíumenn frábært og léttleikandi sóknarlið sem beið óvæntan ósigur fyrir baráttuglöðu og einbeittu liði Úrúgvæa.
Að missa af HM-titlinum á heimavelli var gífurlegt áfall fyrir Brasilíumenn, og þótt þeir hafi verið búnir að fá sig fullsadda af varnarsinnuðum leik Dunga-liðsins, þá þora þeir greinilega ekki að stíga stórt skref til baka í átt að "fallega leiknum" sem þeir Garrincha og Pelé eru holdgervingar fyrir, eða sambaboltanum sem Zico og Sócrates spiluðu fyrir Tele Santana.
Nei, svo undarlegt sem það var, þá var fyrsti kostur þeirra þegar kom að því að velja eftirmann Dunga, Muricy nokkur Ramalho en hann er eins og enn hörkulegri útgáfa af Dunga sjálfum.
Sem betur fór neitaði Fluminense, núverandi lið Muricys, að láta hann lausan til landsliðsins og þá valdi CBF að leita til Mano Manezes, þjálfara Corinthians. Hann þykir bara örlítið minna hörkutól en Muricy og liðin hans spila líka þennan leiðinlega vel skipulagða bolta sem nú um stundir þykir svo hrósverður.
Það ríkti því engin sérstök gleði yfir skipan Mano í þetta starf í mínum herbúðum.
En aðeins tveim dögum eftir að Mano er ráðinn, þá birtir hann liðið sem hann ætlar að tefla fram í vináttuleik gegn BNA þann 10. ágúst.
Og það verður að segjast eins og er, að liðið kemur þægilega á óvart.
Mano velur aðeins 4 af þeim sem voru með á HM í sumar og þar af aðeins Robinho sem verið hefur fastamaður í byrjunarliði Dunga. Einnig hefur Dani Alves verið tíður gestur í landsleikjum undir stjórn Dunga, en hinir eru allir annaðhvort nýliðar eða hafa leikið sárafáa landsleiki.
Mano velur að sjálfsögðu ungliðana úr Santos sem Dunga var óspart gagnrýndur fyrir að velja ekki, þá Neymar og Paulo Henrique eða Ganso - en hann bætir um betur og velur líka lítt þekktan liðsfélaga þeirra úr framlínunni hjá Santos, André Ribeiro.
Og val hans á markvörðum sýnir að hann er ósmeykur við að gefa nýjum mönnum tækifæri - markverðirnir hans þrír hafa samtals spilað 0 landsleiki. Og athugið að markvörðurinn Renan er ekki sá Renan Brito Soares sem spilaði um eitt skeið með Valencia, heldur er þetta 19 ára gutti, Renan Soares Reuter, sem spilar með lítt þekktu smáliði. Greinilega maður sem Mano er spá í fyrir framtíðina.
Í heild má segja að val Manos sýni meiri metnað til að umbylta liðinu en flestir bjuggust við, og meiri djörfung til að stokka spilin upp á nýtt. Liðið virðist alls ýkja varnarsinnað fyrirfram, þótt ómögulegt sé að segja hvernig Mano ætli svo að stilla því upp. En þetta lítur ágætlega út í bili!
Liðið er svona:
Markverðir:
Jefferson, Botafogo RJ, fæddur 1983, enginn landsleikur.
Renan, Avai, fæddur 1990, enginn landsleikur.
Victor, Gremio, fæddur 1983, enginn landsleikur.
Hægri bakverðir:
Dani Alves, Barcelona, fæddur 1983, 40 landsleikir, 3 mörk.
Rafael, Man.Utd, fæddur 1990, enginn landsleikur.
Miðverðir:
David Luiz, Benfica, fæddur 1987, enginn landsleikur.
Henrique, Barcelona/Racing Santander, fæddur 1986, einn landsleikur.
Réver, Atlético Mineiro, fæddur 1985, enginn landsleikur.
Thiago Silva, AC Milan, fæddur 1984, sjö landsleikir.
Vinstri bakverðir:
André Santos, Fenerbache, fæddur 1983, níu landsleikir.
Marcelo, Real Madrid, fæddur 1988, 6 landsleikir, 1 mark.
Varnartengiliðir/volantes:
Sandro Ranieri, Internacional/Tottenham, fæddur 1989, einn landsleikur.
Jucilei, Corinthians, fæddur 1988, enginn landsleikur.
Lucas, Liverpool, fæddur 1987, fjórir landsleikir.
Ramires, Benfica, fæddur 1987, 16 landsleikir, 2 mörk.
Sóknartengiliðir:
Hernanes, Sao Paulo, fæddur 1985, einn landsleikur.
Ederson, Lyon, fæddur 1986, enginn landsleikur.
Carlos Eduardo, Hoffenheim, fæddur 1987, þrír landsleikir.
Paulo Henrique/Ganso, Santos, fæddur 1989, enginn landsleikur.
Framherjar:
Alexandre Pato, AC Milan, fæddur 1989, átta landsleikir, 1 mark.
Diego Tardelli, Atlético Mineiro, fæddur 1985, fjórir landsleikir.
André Ribeiro, Santos, fæddur 1990, enginn landsleikur.
Neymar, Santos, fæddur 1992, enginn landsleikur.
Robinho, Santos/Man.City, fæddur 1984, 79 landsleikir, 25 mörk.
Blogg
LOFAR GÓÐU!
10:45 › 27. júlí 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





