"Hvað mun koma fram á þessum blaðamannafundi Jóhönnu og Steingríms klukkan fimm? Hringið í einhvern og finnið út úr því. Strax!"
Þessi skipun var alveg áreiðanlega gefin af ritstjóra eða fréttastjóra á hverjum einasta íslenskum fjölmiðli upp úr hádegi í dag, þegar spurðist út að forkólfar ríkisstjórnarinnar ætluðu að halda blaðamannafund til að kynna niðurstöðu sína í Magma-málinu.
Og nema hvað? Hafi þessi skipun EKKI verið gefin, þá þýðir það einfaldlega að viðkomandi ritstjórar og fréttastjórar eru ekki starfi sínu vaxnir, og ættu að snúa sér eingöngu að kleinubakstri.
En án þess að ég hafi fylgst nákvæmlega með því, þá sá ég ekki betur en flestallir fjölmiðlarnir væru komnir með nokkuð nákvæmar fréttir af því sem Jóhanna og Steingrímur ætluðu að segja, þó nokkru áður en fundurinn hófst.
Blaðamennirnir hafa altso staðið sig prýðilega í stykkinu við að "hringja í einhvern og finna út úr því". Gott hjá þeim.
Meðal þeirra blaðamanna sem greinilega fóru á stúfana þegar blaðamannafundurinn var boðaður var Þórður Snær Júlíusson blaðamaður á Viðskiptablaðinu.
Þórð Snæ þekki ég ekki, en hef grun um að hann sé harðduglegur blaðamaður, útsjónarsamur og vel að sér.
Hann virðist hafa hringt í Elías Jón Guðjónsson aðstoðarmann menntamálaráðherra. Kannski hringdi hann í fleiri, hvað veit ég. Altént kemur ekki á óvart að hann hafi hringt í téðan Elías Jón - því það er jú eitt af óopinberum hlutverkum aðstoðarmanna ráðherra að sjá um samskipti við fjölmiðla og gefa þeim upplýsingar.
Kannski þekkjast þeir vel, hvað veit ég, að minnsta kosti kallar Elías Jón blaðamanninn Dodda í frægum tölvupósti sínum.
Áður en lengra er haldið, er kannski rétt að taka fram að Elías Jón þekki ég heldur ekki, frekar en Þórð Snæ. Ég vissi ekki að hann væri til, fyrr en í dag.
Nema hvað, Elías Jón stingur upp á því við einhverja aðra aðstoðarmenn annarra ráðherra að Þórður Snær fái tilteknar upplýsingar um það sem Jóhanna og Steingrímur J. ætla að kynna á blaðamannafundinum.
Hann skrifar upp texta þar að lútandi - en virðist svo hafa klúðrað sendingunni rækilega, hvernig sem á því stóð. Ekki nenni ég að elta ólar við þær furður.
Það sem máli skiptir eru hins vegar undarlega taugaveiklunarleg viðbrögð sem mætti þessari "uppljóstrun".
Hver át upp eftir öðrum að hér væri komið dæmi um einhvern ískyggilegan og siðlausan spuna ríkisstjórnarinnar.
Meira að segja þrautreyndir blaðamenn, sem áttu að vita betur, féllu í þá gryfju að tala um tilraunir Elíasar Jóns til að "afvegaleiða umræðuna" eða "rugla umræðuna". Og sú gáfaða kona Lára Hanna óskaði af þessu tilefni eftir "sjálfstætt hugsandi frétta- og blaðamönnum, sem láta ekki fara svona með sig".
Og Vísir.is (sem sjálfur skúbbaði að ég held efni blaðamannafundarins) sagði að tölvupósturinn hefði "afhjúpað spunavél ríkisstjórnarinnar". Eftir að hafa væntanlega fengið upplýsingar um fundarefnið frá einhverjum öðrum úr stjórnkerfinu!
Mér rann þetta satt að segja til rifja. Maður er nú gamall blaðamaður! Ég gat ekki séð að Þórður Snær hefði sýnt neitt sérstakt ósjálfstæði, hvað þá að hann væri að "láta fara svona með sig".
Hann var bara að afla frétta. Gott hjá honum!
Og ég gat reyndar heldur ekki séð að Elías Jón væri að "afvegaleiða umræðuna" eða "rugla" hana. Þær upplýsingar sem hann stakk upp á að Þórður Snær fengi, þær voru í öllum aðalatriðum nákvæmlega það sem Jóhanna og Steingrímur kynntu svo á blaðamannafundinum einum eða tveim tímum seinna.
Það var því ekkert rangt í þeim texta sem Elías Jón var að möndla með, hvorki beinlínis né óbeinlínis. Enginn sérstakur spuni. Þetta var bara frekar beint af beljunni - eins og það heitir. Hann var bara að beina athygli að því sem honum fannst vera aðalatriði málsins.
Og nema hvað?
Það má deila um hvort og hvernig aðstoðarmenn ráðherra eiga að koma fyrirfram á framfæri upplýsingum við fjölmiðla um það sem til stendur að gera. Það er umræða sem á heima í stjórnsýslu og stjórnmálaflokkum, en kemur almenningi lítið við.
Almenningur á alltaf að líta á það sem skýlausan rétt sinn að fá allar upplýsingar, og helst strax!
En altént hefur slíkt og þvíumlíkt alltaf tíðkast og mun alltaf gera.
Enda er það í mörgum tilfellum sjálfsagt mál. Svo fremi - vel að merkja - sem aðstoðarmennirnir séu ekki að afvegaleiða eða rugla umræðuna!
En það get ég bara ekki með góðu móti séð að Elías Jón hafi gert.
Vissulega dregur hann sumsé fram það sem hann (og ríkisstjórnin) töldu aðalatriðin í samkomulagi Jóhönnu og Steingríms um Magma-málið - en það er síðan sett fram á bara ósköp greinargóðan hátt.
Sjá einnig niðurstöðu Friðriks Þórs Guðmundssonar um sama efni, hér.
Og blaðamaður, sem leitar upplýsinga hjá aðstoðarmanni ráðherra, hlýtur síðan að meðhöndla þær af hæfilegri varúð. Báðir aðilar gera sér grein fyrir því að upplýsingum úr innstu herbúðum ráðherra er auðvitað ekki beint ætlað að varpa rýrð á málflutning ráðherrans. Þó nú ekki.
Auðvitað er um að ræða netta tilraun til að hafa áhrif á umræðu í fjölmiðlum, en það er nú óvart beinlínis hlutverk fjölmiðlafulltrúa og aðstoðarmanna. Og í því þarf hvorki að felast siðleysi né lygar. Um slíkt getur vissulega verið að ræða - en ég fæ bara ekki séð að um það hafi verið að ræða í þessu tilfelli.
Svo hvað var eiginlega málið? Af hverju þessi heilaga vandlæting, jafnvel hjá þrautreyndum fjölmiðlamönnum?
Væntanlega þarf Elías Jón að standa einhverjum reikningsskil á mjög undarlegu orðavali í tölvupósti sínum. Það var satt að segja afar ósmekklegt, vægast sagt, og hann verður líkastil að hugsa sinn gang út af því.
Ég get út af fyrir sig tekið undir með Sigurbjörgu um það, þó hún sé kannski full harðorð fyrir minn smekk.
En idjótískt orðaval snertir samt ekki aðalatriði málsins.
Aðalatriði málsins snúast um blaðamann, sem leitar sér upplýsinga, og pólitískan aðstoðarmann ráðherra, sem gefur slíkar upplýsingar. Hvort tveggja gerist á hverjum degi.
Þó við vanda sé að glíma í samfélaginu megum við ekki fara alveg á taugum, og sjá púka alveg útí hverju einasta horni.
Blogg
AF HVERJU ÞESSI HEILAGA VANDLÆTING?
22:27 › 27. júlí 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





