ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

OKKAR MINNSTU SYSTUR

11:04 › 2. júlí 2010

Kreppan okkar á Íslandi er að hluta til sálfræðileg, fremur en nokkuð annað. Við erum föst í áhyggjum og bölsýni sem við komumst ekki upp úr. Partur af lausninni er að rjúfa hringinn, hugsa jákvætt og hugsa um aðra en sjálfan sig. Í "góðærinu" áttu allir að hugsa vel um sjálfan sig, nú væri mikil bót í því að hugsa vel um aðra. Það er til dæmis hægt að gera með því að styðja verkefni minnar góðu móður við að styðja bláfátæk börn í Jemen til náms.

Þótt kreppan hér sé alvarleg vitum við auðvitað fullvel að langflest búum við við frábær lífskjör miðað við það sem gerist og gengur í fátækustu löndum heims.

Mín góða móðir, Jóhanna Kristjónsdóttir, hefur undanfarinn hálfan áratug helgað líf sitt því að láta gott af sér leiða í einu allra fátækasta ríki heims, Jemen á Arabíuskaga. Ég hef ekki komið þangað en mér skilst að þetta sé heillandi land mikillar náttúrufegurðar og sjarmerandi mannlífs, en fátæktin er mikil.

Og stúlkur úr alþýðustétt hafa fá og léleg tækifæri til að mennta sig.

Mamma hefur tekið höndum saman með jemenskri hugsjónakonu um að stofna skóla fyrir jemenskar stúlkur, sem ekki hefði annars fengið nein tækifæri til að mennta sig. Árangurinn er frábær - nokkrar stúlknanna sem þær stöllur hafa tekið upp á sína arma eru komnar alla leið á háskólastig og standa sig frábærlega, en aðrar þurftu kannski ekki annað en tækifæri til að læra á saumavél til að breyta lífi sínu.

Mamma hefur þann hátt á að íslenskt fólk sem vill styðja við bakið á þessum jemensku stúlkum styður hvert sitt barn (ekki eingöngu stúlkur þó þær séu í meirihluta). Stuðningurinn kostar 250 dollara á ári. Það gerir um 2.500 krónur á mánuði, gróft reiknað. Vegna kreppunnar hafa mörg barnanna í Jemen misst sína stuðningsaðila, og mamma leitar nú logandi ljósi að nýjum - svo börnin geti haldið áfram í skóla.

Kíkið endilega á bloggsíðuna hennar mömmu þar sem sagt er frá Fatímusjóðnum, sem heldur utan um þessa verkefni.

Kíkið á síðuna hennar og skrifið ykkur svo fyrir stuðningi við hin bláfátæku börn í Jemen með því að skrifa henni á jemen@simnet.is.

Þó það sé erfitt hér hjá sumum, þá ráða þó sem betur fer margir við að styðja sínar minnstu systur, og bræður.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.