Guðlaugur Þór Þórðarson segist aðeins geta birt nöfn þeirra styrktaraðila sinna úr prófkjörinu fræga, sem veitt hafi honum leyfi til þess.
Athyglisvert er að hann birtir upplýsingar um fjölda styrkja frá löngu dauðum fyrirtækjum, eins og Baugi Group, FL Group, bönkunum ...
Skyldi Gulli hafa hnippt í líkin og spurt hvort hann mætti upplýsa um styrkina?
Á sama tíma segist hann hins vegar ekki munu birta upplýsingar um styrki sem hann hafi fengið frá þeim einstaklingum sem látist hafa síðan prófkjörið góða var haldið.
Skyldi þar vera um marga að ræða?
Ég minnist þess ekki að hafa heyrt um neina skæða plágu sem gengið hafi í hópi bissnissmanna.
En ég skil ekki af hverju má birta upplýsingar um styrki frá dánum fyrirtækjum, en ekki dánum einstaklingum.
Guðlaugur berst nú hatrammlega fyrir pólitísku lífi sínu.
Einhver ætti að segja honum að stór hluti af þrýstingnum sem nú er á honum (og mun fara vaxandi á næstunni) stafar af því að hann upplýsti ekki um ALLA styrkina til sín.
Þangað til hann birtir allar upplýsingarnar, þá mun þetta lykta af kattarþvotti og engu öðru.
Blogg
STYRKIR FRÁ HINUM LÁTNU
16:38 › 6. júní 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
