ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

EKKI ÍSBJÖRN Í HÚSDÝRAGARÐINN!

10:27 › 6. júní 2010


Heldur virkar það vandræðalega hvernig málsvari Besta flokksins er farinn að reyna að klóra í bakkann varðandi kosningaloforðið fræga um ísbjörn í Húsdýragarðinn.

Hérna segir Gaukur Úlfarsson að um verði að ræða eins konar heilsubótarvist fyrir ísbirni sem rekast hingað af tilviljun, oft þreyttir og svangir. Þá eigi að fanga lifandi og geyma þá síðan í Húsadýragarðinum í hálft ár eða svo. Gefa þeim að éta, leyfa þeim að hvíla sig og síðan senda þá aftur út á ísinn.

Þetta segir Gaukur vegna þess að fram er komin gagnrýni á að Besti flokkurinn ætli kannski að eyða hundruðum miljóna í slagorðið "ísbjörn í Húsadýragarðinn" þegar ýmis brýnni verkefni gætu þurft að sitja á hakanum.

Í reynd er hin nýja áætlun Besta flokksins að líkindum tóm tjara. Jafnvel þó aðeins sé gert ráð fyrir að ísbjörn hafi hálfs árs viðdvöl í Húsdýragarðinum, þá mun það kosta mikið fé að koma upp aðstöðu fyrir hann.

Svo mikið fé að það er óréttlætanlegt að kosta því til í þessu árferði - sér í lagi vegna þess að enginn veit hvort nokkur þörf verði á því.

Enginn veit hvenær ísbjörn hrekst næst upp að ströndum okkar. Það gæti orðið á morgun, það gæti líka orðið eftir fimm ár eða tíu.

Og ætlar Reykjavíkurborg að halda úti sérsveit sem alltaf er tilbúin til að draga á sig stígvél og stökkva á ísbjarnaveiðar ef bangsi birtist? Hvernig ætlar Jón Gnarr að stöðva heimamenn sem jafnan hneigjast til að skjóta ísbirni um leið og þeir sjást?

Og hefur Gaukur Úlfarsson kannað hvort það sé í rauninni hollt fyrir ísbirni að vera teknir úr sínu náttúrulega umhverfi í hálft ár, þeir látnir kýla vömbina og dekrað við þá á allan hátt, en þeir síðan fluttir upp úr þurru út í náttúruna á ný?

Það skal tekið fram að ég er í meginatriðum mjög hlynntur því að reynt verði að þyrma lífi ísbjarna sem rekast hingað til lands. Í sjálfu sér hefði ég því síst nokkuð á móti þessari áætlun Besta flokksins. Nema ég hef grun um að það sé ísbjörnum hollast að komast sem fyrst úr klóm okkar og út á ísinn aftur.

En mergurinn málsins núna er að þetta hljómar eins og furðu gamaldags pólitískt yfirklór. Flokkur stendur frammi fyrir að þurfa að uppfylla vanhugsað og alltof dýrt kosningaloforð og byrjar að bakka frá því.

"Ja, við meintum nú kannski ekki alveg að þetta ætti að vera svona, heldur vorum við frekar að tala um svona, eða jafnvel verður hægt að sleppa með þetta ..."

En Besti flokkurinn þarf ekki að haga sér svona.

Ólíkt öllum öðrum flokkum og framboðum í samanlagðri stjórnmálasögunni, þá ætlast enginn til þess að Besti flokkurinn standi við kosningaloforðin sín.

Sem er í sumum tilfellum guðsþakkarvert - samanber kosningaloforðið um að ættleiða róna, og annað þess háttar grín.

Að Besti flokkurinn skuli í tilfelli ísbjarnarins hafa leiðst út í þrautþjálfaða en hundleiðinlega aðferð við að bakka með kosningaloforðin sín, í stað þess að blása þau bara sjálfur út af borðinu, það þykir mér heldur verra.

Eitthvað hefðbundið við það.

Besti flokkurinn nýtur þeirrar óvenjulegu sérstöðu að geta byrjað með algjörlega hreint borð. Kjósendur hans og líklega flestallir borgarbúar búast við því af honum að hann innleiði ný vinnubrögð og nýjan hugsunarhátt, og að því ætti hann að einbeita sér.

Enginn ætlast á hinn bóginn til þess að hann uppfylli kosningaloforð sín! - og hann ætti því ekki að fara að klóra svona í bakkann.





ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.