Ágúst Einarsson fráfarandi rektor á Bifröst kvaddi skólann með heilmikilli ræðu í dag, þar sem hann tók meðal annars upp hina gömlu hugmynd Vilmundar Gylfasonar og Bandalags jafnaðarmanna, að framkvæmdavaldið yrði kosið beinni kosningu hér á landi.
Vilmundur var náttúrlega ekki fyrstur manna til að fá þessa hugmynd, en hann gerði málið að þungamiðju í baráttu BJ fyrir kosningarnar 1983.
Eftir á að hyggja voru það mistök hjá Vilmundi. Margir höfðu áhuga á að styðja hann í baráttu gegn spillingu og samtryggingarkerfi stjórnmálaflokkanna, en barátta fyrir beinni kosningu framkvæmdavalds var ótímabær - enda höfðu litlar sem engar umræður farið fram um málið. Það ruglaði því bara kjósendur í ríminu að Vilmundur ætlaðist til að þeir styddu þetta baráttumál hans, án þess að hafa hugsað það til enda.
Ef að líkum lætur verður kosið til stjórnlagaþings í september; það verða að minnsta kosti meiri svikin ef það mun enn dragast eitthvað að ráði. Og þegar það tekur til starfa mun hugmyndin um beina kosningu framkvæmdavaldsins koma alvarlega til umræðu.
Og því er í rauninni nauðsynlegt að hefja umræður um málið strax. Svo umræðan verði komin eitthvað áleiðis þegar stjórnlagaþingið tekur til starfa, og menn viti að minnsta kosti um hvað er að ræða.
Vilmundur vildi láta kjósa valdamikinn forseta, rétt eins og í Bandaríkjunum og Frakklandi. Það er ekki endilega eina leiðin - það má líka kjósa forsætisráðherra, en halda forsetaembættinu sem valdalausri puntstöðu.
Ýmislegt kemur til mála. En það væri gaman að heyra hvað fólki hugnast.
Blogg
VILJUM VIÐ AMERÍSKAN FORSETA?
18:33 › 5. júní 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
