Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra verður vissulega að skýra skilmerkilega frá aðkomu sinni að launamálum Más Guðmundssonar Seðlabankastjóra. Mogginn hefur nú birt upplýsingar úr tölvupóstum (sjá hér) sem virðast stangast á við orð Jóhönnu á þingi, sjá hérna.
Í sjálfu sér er vafalítið ekkert óeðlilegt við að hún hafi tekið þátt í að ákveða nýjum Seðlabankastjóra laun. En það er verra ef hún hefur farið úr ræðustól á Alþingi rangt með afskipti sín af frægum launahækkunum/lækkunum Más Guðmundssonar sem komust í hámæli fyrir nokkrum vikum.
Vera má að það sem virðist vera augljóst misræmi í orðum Jóhönnu á þingi annars vegar og í tölvupóstunum hins vegar, eigi sér ósköp eðlilega skýringu. Stundum kann ég ekki að lesa úr orðfæri kansellísins. En það verður fróðlegt að heyra þá skýringu. Að minnsta kosti er ljóst að Jóhanna kemst ekki upp með neinn moðreyk þegar hún skýrir þetta mál.
Hún getur ekki farið fram á að aðrir stjórnmálamenn umgangist sannleikann af virðingu, ef hún gerir það ekki sjálf.
Kannski er þetta stormur í vatnsglasi. Annað eins hefur gerst. En það er þá best að koma því almennilega hreint.
- - - - -
Viðbót.
Á Pressunni.is hafa nú birst stutt komment frá Jóhönnu vegna málsins. Sjá hér. Skýring hennar er einfaldlega sú að þótt henni hafi borist tölvupóstar um launamál Más frá honum, þá hafi hún ekki svarað þeim, þar eð hún hafi ekki talið þau mál í sínum verkahring.
Þetta hljómar mjög sennilega - og ekki síst vegna þess hve afdráttarlaus orð Jóhönnu voru á þingi um að hún hefði ekki komið nálægt þessu. Ýmislegt má eflaust segja um Jóhönnu en hún hefur ekki verið staðin að því hingað til að ljúga blákalt.
Svo kannski er þetta mál þrátt fyrir allt svolítil smjörklípa af Mogganum ...! Það kæmi ekkert svakalega mikið á óvart. En ætli það komi ekki í ljós á næstunni.
- - - - -
Enn seinni viðbót.
Samkvæmt þessari frétt á Eyjunni verður ekki betur séð en Jóhanna hafi allan tímann sagt satt og rétt frá.
Sem er hið besta mál.
Einhverjir munu enn þrefa um málið, en ég fæ ekki séð að þessi þáttur (um hvað Jóhanna vissi, hvað hún sagði og hvað hún gerði) þarfnist frekari umræðu.
Blogg
JÓHANNA BÚIN AÐ SKÝRA SITT MÁL
22:54 › 5. júní 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
