ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 11m/s WSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

SPÚLIÐ ÚT ÚR ORKUVEITUNNI!

11:13 › 3. júní 2010



Jæja já! Svo það þarf að hækka heita vatnið okkar hérna í
Reykjavík um 37 prósent á næstu fimm árum!

 

Þetta er haft eftir Guðlaugi Sverrissyni stjórnarformanni
Orkuveitu Reykjavíkur í Fréttablaðinu í morgun.

 

Fréttamaðurinn skrifar síðan: “Spurður hvers vegna
upplýsingarnar koma fram þremur dögum eftir kosningar segir hann það
einfaldlega vera vegna þess að vinnu hafi ekki lokið fyrr. Ágætt hefði verið ef
þær hefðu legið fyrir þegar kosið var á laugardag, en það hafi ekki náðst.
Vissulega hefði verið hægt að setja meiri kraft í vinnuna, en það hafi ekki
verið gert.”

 

Þetta er með eindæmum, satt að segja.

 

“Vinnu hafi ekki lokið fyrr …”

 

Nei? Bara hrein tilviljun að vinnunni við að reikna út
nauðsynlegar gjaldskrárhækkanir ljúki rétt eftir kosningar? Algjör tilviljun, herra minn, já, ég trúi því vel!

 

“Ágætt hefði verið að [upplýsingarnar] hefðu legið fyrir
…”

 

Þetta svar er líka gott dæmi um þann hroka sem einkennt hefur
alla fyrirsvarsmenn Orkuveitu Reykjavíkur nú um langa hríð. Æjú, það hefði
svosem verið ágætt ef almenningsgreyin og hyskið (sem á að borga eftir hinni nýju gjaldskrá) hefði fengið eitthvað að vita, en … sona
var nú það! Við strákarnir höfum okkar tempó í þessu ...!

 

“… hefði verið hægt … hafi ekki verið gert …”

 

Ójá, málefni Orkuveitunnar eru að verða þyngri en tárum
taki. Það er satt að segja eitt brýnasta verkefni nýrrar borgarstjórnar að
spúla rækilega út úr skúmaskotum þess fyrirtækis, og lofta þar rækilega út.

 

Fyrirtækið hefur lengi verið eftirsóttasta herfangið í borgarkerfinu
fyrir pólitísku flokkana. Ekki hefur verið litið á það sem þjónustufyrirtæki fyrir borgarbúa, heldur hefur það orðið leiksoppur og gróðavegur trénaðra flokksdáta.

 

Og með þessum líka árangri!!

 

Ef tekið er mið af frétt Fréttablaðsins í morgun.

 

Þarflaust er vonandi að taka fram, að tiltektin hjá Orkuveitunni
verður ekki gerð með því að forstjórinn Hjörleifur Kvaran ummyndist enn einu
sinni, og nú kannski í slepjulegan stuðningsmann Besta flokksins!

 

Þvert á móti vona ég að Besti flokkurinn nýti tækifæri
sitt í Reykjavík ekki síst til að opna allar gáttir Orkuveitunnar.

 

Það má vel vera að það verði ekki komist hjá einhverjum
gjaldskrárhækkunum næstu misserin eða árin – þó vonandi þurfi þær ekki verða að
svo svakalegar sem Guðlaugur Sverrisson fráfarandi stjórnarformaður gefur til
kynna.

 

En þær hækkanir munu verða Reykvíkingum léttari byrði ef
þeir vita að það fyrirtæki, sem þeir hafa lagt mikið á sig til að byggja upp,
er ekki lengur leikvöllur dekurdrengja og makráðra pólitískra lénsherra.

 

 

 



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.