ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

HVAÐ ER SVONA HÆTTULEGT VIÐ AÐ FLOKKAR KLOFNI?

10:23 › 25. júní 2010


Sjálfstæðismenn hafa nú sumir hverjir þungar áhyggjur af því að flokkurinn kunni að klofna út af Evrópusambandsmálum.

Ég held nú reyndar - sem sérfræðingur í sálarlífi sjálfstæðismanna - að það sé ekki endilega Evrópusambandið sem vefjist mest fyrir þeim.

Heldur frekar hin óuppgerðu mál við fyrrum forystu flokksins og þá hugmyndafræði sem hún aðhylltist og þau meðul sem hún notaði til að viðhalda völdum sínum.

Margoft hef ég sagt að sá forystumaður sjálfstæðismanna sem þorir að stíga fram og heimta róttækt uppgjör við Davíðstímann (eða með öðrum orðum flytja "leyniræðu Krústjovs"), hann eða hún mun uppskera ríkulega, þótt síðar verði.

Ef þessi mál hinnar fornu forystu væru ekki að vefjast fyrir flokknum, held ég að hann ætti mun auðveldara með að greiða úr sínum ESB-málum.

En það verður varla gert á næstunni, og því óttast sem sagt margir sjálfstæðismenn að flokkurinn klofni.

Á sama tíma berast fregnir af því að margir innan VG óttist að flokkur þeirra muni líka klofna.

Ég veit ekki alveg út af hverju - sjálfsagt er allskonar marktækur málefnaágreiningur innan VG en aðallega virðist flokkurinn illa haldinn af Alþýðubandalagsveikinni.

Sú veiki gengur út á að hættulegasti óvinurinn sé ævinlega innanflokks.

Ég er annars minni sérfræðingur í sálarlífi vinstrigrænna en sjálfstæðismanna, svo ég kann ekki að skýra um hvað VG muni klofna.

En alla vega óttast margir innan VG að flokkurinn klofni.

En af hverju? Hvað er svona óttalegt við það að annaðhvort Sjálfstæðisflokkurinn eða Vinstrigrænir eða báðir klofni svolítið? Af hverju líta núverandi flokksmenn ekki á það sem spennandi tækifæri til að hrista upp í hugmyndabaráttunni, leggja niður fúin valdabandalög sem löngu hafa gengið sér til húðar, en finna nýja bandamenn - kannski á óvæntum stöðum?

Um að gera - kljúfið þessa flokka. Kljúfið þá alla saman!




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.