ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

DÓMSMÁL, EKKI RÉTTLÆTI

11:56 › 24. júní 2010


Nú vilja sumir flækja upp úr öllu valdi niðurstöðu Hæstaréttar í bílalánamálinu, og helst vísa hverju einasta máli sérstaklega fyrir dómstólana.

Það væri líklega óskadraumur lánafyrirtækjanna.

Ég ætla nú ekki að hafa mikla skoðun á bílalánamálum, en mikið er þetta dæmigert fyrir okkur Íslendinga.

Hér á fyrr á tíð, þá voru uppi miklir málafylgjumenn sem þrifust ekki nema þeir væru með mörg mál samtímis fyrir dómstólunum.

Þeir kölluðust gjarnan Mála-Ólafur, Mála-Elliði, og svo framvegis.

Og þeir þóttu bara helvíti fínir kallar!

Þessir ömurlegu rifrildisseggir sem héldu dauðahaldi í hvern lagakrók og jöpluðu á hverri einustu lögbók meðan tyggja mátti úr henni minnsta vott af safa.

Afkomendur þeirra lifa góðu lífi á Íslandi enn í dag.

Í hvert sinn sem eitthvert réttlætismál skýtur upp kollinum, þá sæta þeir færis að gera úr því dómsmál.

Flækja það í hnút.

Eða er það tilviljun að sá málaflokkur, sem í útlöndum er kenndur við réttlæti, er á Íslandi kenndur við dómsmál?

Í Ameríku er Secretary of Justice, á Bretlandi er Minister of Justice, á Norðurlöndum er justisminister.

En á Íslandi er dómsmálaráðherra.

Það segir sína sögu, er ég smeykur um.

Við verðum alltaf föst í flækjum dómsmálanna, en æ, svo sorglega fjarri réttlætinu ...







ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.