Ósköp er þetta ömurleg fyrirsögn hjá Pressunni.is um austurrísku stúlkuna Natöschu Kampusch og væntanlega sjálfsævisögu hennar.
"Ætlar að græða á hryllingnum" er fyrirsögn - og dómur - Pressunnar um ævisagnaritun stúlkunnar.
Stúlkan var eins og menn muna fangi barnaníðings að nafni Priklopil í átta ár. Á þeim tíma bast hún mannræningja sínum vitaskuld tilfinningaböndum, það segir sig bara sjálft um barn sem lendir í þessum hryllingi.
Menn hafa raunar lengi haft grun um að sagan um samband þeirra Natöschu og Priklopil væri merkileg og lærdómsrík og fyllilega þess virði að segja hana - þótt ófögur sé.
Natascha Kampusch hefur raunar vakið athygli fyrir það af hve miklu hugrekki hún hefur reynt að horfast í augu við heiminn eftir sína skemmdu æsku.
En nei - þá ákveður einhver blaðamannsdóni á Pressunni uppá Íslandi að það eina sem vaki fyrir Natöschu sé að græða á öllu saman.
Eðlileg hvöt hverrar manneskju, sem lendir í miklum raunum, til að segja sögu sína, er dregin niður í svaðið af þessum blaðamanni Pressunnar.
Ég stórefast satt að segja um að viðkomandi blaðamaður þekki nokkuð til Natöschu Kampusch persónulega eða sé þess umkominn að leggja dóm á það hvað vaki fyrir henni með bókaskrifunum.
Það skiptir auðvitað engu þótt Natascha Kampusch muni aldrei frétta af þessari fyrirsögn. Söm er skömmin.
Svona vinnubrögð eru billegt drasl.
- - - - - -
Pressan hefur nú breytt fyrirsögn sinni. Fyrirsögnin er nú "Skrifar bók um hryllinginn". Breytingin er mjög til bóta.
Blogg
ÖMURLEG FYRIRSÖGN!
22:23 › 23. júní 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
