ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.4° 10m/s WSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ÞAKKA ÞÉR FYRIR, HANNES HÓLMSTEINN

11:10 › 2. júní 2010



Hannes Hólmsteinn mælist til þess að "hinir dómhörðu (en
hörundssáru) álitsgjafar vinstri manna" svari þessari grein hans með "rökum, í stað
þess að hrópa [hana] niður".

 

Ég held ég sé ekkert að því.

 

Því þessari grein þarf ekkert að svara. En þaðan af síður á að hrópa hana niður.

 

Það þarf þvert á móti að birta hana sem víðast, og tryggja að sem
flestir lesi hana.

 

Ég held að Hannes átti sig í fúlustu alvöru ekki á því sjálfur
hvað er athugavert við "röksemdafærsluna" sem hann birtir í greininni.

 

Að það sé eðlilegt og æskilegt að stjórnendur fyrirtækja
styrki Sjálfstæðisflokkinn með peningum, en óeðlilegt og spillt að þeir styrki
nokkurn einasta annan flokk.


Ég held hins vegar að flestir aðrir sjái það í hendi sér hvað er athugavert við þetta sjónarmið, og þurfti ekki að hafa um það mörg orð.

 

Við höfum auðvitað vitað lengi að svona líta Sjálfstæðismenn á málið.

 

Jón Ólafsson sagði einu sinni frá því að eftir að hann
náði til sín Stöð 2, þá mættu forkólfar úr peningadeild Sjálfstæðisflokksins
til hans til að ná í pening.

 

Þeir voru ekkert að biðja góðfúslega um styrki eða neitt svoleiðis.

 

Nei, þeir komu til að segja honum hvað væri eðlilegt að
hann "ætti" að borga til flokksins.

 

Svona eins og mafíósar að innheimta verndartolla, þótt ekki ætli ég að öðru leyti að líkja FLokknum við glæpasamtökin þau.

 

En þannig hefur Sjálfstæðisflokkurinn hugsað, og þannig
hugsar hann enn.

 

Við skulum þakka Hannesi fyrir pistil hans, því
hann sýnir okkur fram á að hugsunarháttur valdakjarnans í Sjálfstæðisflokknum er óbreyttur.

 

 

 



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.