Hvað erum við Íslendingar að borga fyrir að fá hingað
sveit orrustuþotna frá Þýskalandi til að “verja” landið í nokkrar vikur?
Þetta er auðvitað eintóm sýndarmennska og engum til gagns, nema kannski þýsku flugsveitinni sem hefur þá eitthvað að dunda við.
En höfum við ekkert annað við peningana okkar að gera en
kosta þessa vitleysu?
Og svo datt af mér andlitið þegar ég sá þýsku
orrustuþoturnar koma inn til lendingar.
Þarna voru komnar ævafornar amerískar Phantom-þotur, en
þær fóru fyrst í loftið árið 1958 og voru teknar í almenna notkun í bandaríska
flughernum 1960.
Þær þóttu liprar í loftinu og urðu eitt af helstu táknum hins
ameríska hernaðarmáttar er kalda stríðið stóð sem hæst. Í Víetnamstríðinu áttu
Phantom-þoturnar sínar “fegurstu” stundir og slógust þá ósjaldan við sovéskar Mig-21 þotur í flugher Norður-Víetnama. Mig-21 voru að sínu leyti tákn hernaðarkrafts Sovétríkjanna.
En strax um 1975 komu arftakar Phantom-þotnanna fram á
sjónarsviðið og upp úr 1980 tóku þær að hverfa hratt úr amerískum flugsveitum.
Þar á meðal af Keflavíkurflugvelli en þaðan hurfu Phantom-þoturnar snemma á níunda
áratugnum, eða fyrir rétt tæpum 30 árum.
Það kom mér satt að segja í opna skjöldu að Þjóðverjar skuli
enn vera með þetta gamla 50 ára brak í sinni þjónustu. Það er svona eins og að
þeir hefðu enn árið 1960 verið með flugvél Wright-bræðra í fremstu víglínu í flugher
sínum.
Alla vega sýnir það ljóslega fram á fáránleikann við þetta
orrustuþotubrölt á Keflavíkurflugvelli að þar skuli aftur vera mættir þessir
gömlu Draugar úr kalda stríðinu.
Vitaskuld hefði þó ekki verið neitt meiri tilgangur með þessari "fluggæslu" á Keflavíkurflugvelli þótt Þjóðverjarnir hefðu mætt með allra nýjustu græjur.
Það var bara svo innilega lýsandi fyrir tilgangsleysið með þessu að þeir skuli koma með þetta gamla drasl.
Og má ekki bara hætta þessu alveg? Getum við ekki sett gjaldeyrinn
okkar í eitthvað annað en fjörbrot 50 ára gamalla orrustuþotna? Eða orrustuþotur yfirleitt?






Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
