ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

OPIÐ BRÉF TIL ÖSSURAR SKARPHÉÐINSSONAR

15:08 › 31. maí 2010

 

Sæll Össur.

 

Þú hefur að sjálfsögðu frétt af nýjustu afreksverkum Ísraela
þegar fjöldi manns féll í valinn í skotbardaga um borð í skipi, sem var að flytja
varning til hinna innikróuðu Palestínumanna á Gaza.

 

Þótt enn sé nokkuð óljóst hvernig þetta vildi til, þá er
deginum ljósara að harðneskjuleg framganga Ísraels gegn Palestínumönnum fyrr og
síðar á hina raunverulegu sök á þessum atburðum.

 

Í mörg ár og áratugi hafa Ísraelar gengið sífellt lengra í
hörku, glæpum og ofbeldi gegn Palestínumönnum í trausti þess að þeir nytu ekki
aðeins stuðnings Bandaríkjamanna, heldur líka vinaþjóða sinna á Vesturlöndum.

 

Nú þykir mér, sem þegn á Íslandi, vera nóg komið.

 

Ég vil ekki lengur hafa stjórnmálasamband við Ísrael.

 

Og ég trúi því ekki að þú viljir heldur hafa neitt saman við
þetta glæparíki að sælda.

 

Ég fer því fram á það við þig, sem starfsmann íslensku þjóðarinnar,
að þú slítir þegar í stað stjórnmálasambandi okkar Íslendinga við Ísraela.


Ég fullyrði að það myndi njóta stuðnings yfirgnæfandi meirihluta íslensku þjóðarinnar.

 

Slík aðgerð getur lagt nokkuð stórt lóð á vogarskálarnar
til að sýna ofbeldisöflunum í Ísrael fram á að þolinmæði fólks hér og á
Vesturlöndum gagnvart níðingshætti þeirra er þrotin.

 

Með bestu kveðju, o.s.frv.

 



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.