ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

"SKILABOÐ TIL FLOKKANNA"???

13:34 › 30. maí 2010

 

Stjórnmálamenn í Silfri Egils tönnlast á "skilboðum til
flokkanna" sem þeim "beri að taka mark á". Eins og það væri sérstakt veglyndi
af þeim.

 

Þetta orðalag held ég að sé partur af þeim hugsunarhætti sem þarf
að útrýma.

 

Orðalagið gefur til kynna að flokkarnir séu enn uppi á
einhverjum Ólympstindi, skýjum ofar, en niðri á jafnsléttu sé "fólkið" að reyna
að kalla "skilaboð" til flokkanna.

 

Hvort þeir vilji kannski náðarsamlegast hlusta? Taka mark á
kveinstöfunum og bænunum?

 

Mundu flokkarnir ekki bara helst vilja tala um "bænaskrár"?

 

Nei – sannleikurinn er sá að nú þurfa flokkarnir að senda
þjóðinni skilaboð. Ekki öfugt.



 

 

 

 



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?