Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

SVARIÐ SPURNINGUM UM ÞETTA HNEYKSLI!

22. október 2010 › 08:54


Svo vill til að ég veit að fjölmargir þingmenn og ráðherrar hafa verið spurðir að því undanfarin dægur hvað þeim finnist um þá ósvinnu að Halldór Ásgrímsson hrun- og sægreifi skuli enn vera fulltrúi Íslands í feitu djobbi hjá Norðurlandaráði.

Ég veit að margir hafa lagt þessar spurningar fyrir þingmennina og ráðherrana, bæði einstaklingar og fjölmiðlar.

Enginn hefur séð sóma sinn í því að svara.

Katrín Jakobsdóttir, sem lét það viðgangast að Halldór fær að vafra um Kaupmannahöfn í tvö ár enn sem okkar fulltrúi, hún hefur engu ansað fjölmiðlum sem spurt hafa hana um málið - nema hinni mjög svo vinveittu Smugu.

Þið fyrirgefið, en ég krefst þess að þingmenn og ráðherrar sem eru á kaupi hjá mér svari spurningum um þetta hneyksli.

Hvar er gegnsæið, hvar eru hinir nýju stjórnarhættir?

Hvorki þingmenn né ráðherrar hafa leyfi til að víkja sér undan spurningum um þetta efni. Geri þeir það áfram verð ég að líta svo á að þeir kjósi frekar þá gamalgrónu samtryggingu sem upphafleg ráðning Halldórs var til marks um, heldur en ný vinnubrögð, nýja hugsun, nýtt upphaf og nýjan heiðarleika.




Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.