ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

RÉTT ÁR FRÁ ÞVÍ ÞAU LÉTU RÍFA HÚSIÐ SITT

11:09 › 9. september 2009


Nú styttist í að ár sé liðið frá hruninu um mánaðamótin september/október 2008.

Það er með blendnum hug sem maður hugsar til þessa "afmælis".

Hefur maður yfirleitt geð í sér til að rifja upp þessa tíma?

Á forsíðu Fréttablaðsins fyrir réttu ári síðan, 9. september 2008, mátti sjá fjörbrot góðærisins.

Eða "gróðræðisins" eins og sumir segja.

Hjónin Haukur Oddsson, forstjóri kreditkortafyrirtækisins Borgunar, og Margrét Gunnarsdóttir láta þá rífa einbýlishúsið sitt í Fossvogi.

230 fermetra hús sem þau eru til þess að gera nýbúin að kaupa á 70 milljónir, segir í Fréttablaðinu. Sjá hér.

Þau hjón nenna ekki að láta gera upp gamla draslið.

Nei, þau ætla að láta byggja nýtt.

Hundrað fermetrum stærra.

Þetta var það alflottasta sem íslenskir auðmenn gátu gert í góðærinu. Kaupa fokdýr hús og láta rífa þau.

Svolítið seint í rassinn gripið samt, hjá þeim hjónum.

Það var bara þrem vikum fyrir hrunið sem þau slepptu vinnuvélunum lausum á húsið sitt.




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?