Er ekki einhvers konar Lennonsdagur í dag, 9/9/9?
Tónleikar í kvöld með lögum Lennons, sem hafði töluna 9 í hávegum.
Auk þess hittist svo á að í dag koma út tveir miklir geisladiskakassar með heildarsafni Bítlanna.
Og í dag upplýsir DV að Bjarni Ármannsson fyrrum bankastjóri þurfi ekki að greiða 800 milljónir króna sem fyrirtæki í hans eigu skuldaði Glitni gamla.
Því, eins og Bjarni segir í stórfenglegu viðtali við Inga Vilhjálmsson hjá DV, það væri í hæsta máta "óábyrg meðferð á fjármunum" hjá sér að borga þessa skuld.
Þessi orð verða vafalítið lengi í minnum höfð, og bankamenn munu í framtíðinni þurfa að heyra þau óteljandi sinnum úr munni þeirra sem glíma nú við að borga miklu minni skuldir en Bjarni.
En skuldir sem skipta viðkomandi þó örugglega meira máli en þessar 800 milljónir sem Bjarni virðist líta á sem hálfgerða smámynt.
Það allra skemmtilegasta í viðtalinu við Bjarna er þegar hann reynir að fá blessun blaðamannsins yfir þá skoðun sína að það væri óábyrgt af sér að borga þessa skuld.
"Er það ekki?" spyr hann sakleysislega.
En óneitanlega vekur athygli mína á þessum Lennonsdegi hvað félagið hans Bjarna hét, þetta sem nú hefur öllu tapað en hann ætlar ekki að borga skuldina.
Það heitir eftir frægasta lagi Lennons, Imagine Investments.
Sjá texta þess hér.
Smekklegt.
Blogg
IMAGINE THERE´S NO MONEY ...
12:00 › 9. september 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
