Það er því miður nauðsynlegt fyrir sem flesta að lesa þessa skýrslu hér.
Um hörmungar þær sem þau börn máttu þola, sem voru á sínum tíma í Heyrnleysingjaskólanum, eða vistuð á Kumbaravogi eða á stúlknaheimilinu Bjargi sem Hjálpræðisherinn rak.
Ég er búinn að renna yfir skýrsluna og þetta er átakanlegur lestur, og nöturlegur.
Eiginlega verður maður ofsareiður við lesturinn, jafnvel þó núorðið hafi vitneskja um það sem þarna fór fram verið komin að mestu fram í dagsljósið.
Ekki síst vegna hugrekkis Breiðavíkurpiltanna sem stigu fram fyrir nokkrum misserum og lýstu hryllingnum sem þeir máttu þola.
Mér finnst það satt að segja ógeðsleg tilhugsun að þar sem ég sprangaði um grundir í æsku, áhyggjulítill og sannfærður um að Íslandið sem ég byggði væri hið besta samfélag allra samfélaga, þá hafi jafnaldrar mínir sumir þurft að þola þessa meðferð sem skýrslan lýsir.
Svei og svei.
Blogg
ÞVÍ MIÐUR NAUÐSYNLEGT AÐ LESA ÞETTA
13:22 › 8. september 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
