ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

NEI TAKK, MÁR GUÐMUNDSSON!

10:34 › 8. september 2009


Fréttablaðið hringdi í Má Guðmundsson Seðlabankastjóra til að spyrja hann um lánafyrirgreiðslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og viðtal sem Már hafði átt við Reuters fréttastofuna.

Fréttablaðið skrifar um tilraun sína til að ná viðtali við Má:

"Már vildi ekki tjá sig um viðtalið við Fréttablaðið og vísaði á
upplýsingafulltrúa Seðlabankans væri óskað eftir viðtali við hann. „Í engu öðru landi mundi blaðamaður hringja beint í Seðlabankastjóra,“ sagði Már.“"

Yfirlætið og hrokinn sem lýsir sér í síðustu setningunni er eiginlega þannig að mann setur hljóðan.

Víst getur vel verið eðlilegt að blaðamenn hafi fyrst samband við upplýsingafulltrúa í tilfellum sem þessum, en það er yfirlætisfullt orðalagið sem vekur mesta athygli.

Var Davíð Oddsson hrakinn nánast með valdi úr Seðlabankanum til að þar gæti sest annar hrokagikkur?

Er það ekki rétt munað hjá mér að hann hafi átt til að taka nánast nákvæmlega eins til orða?

Gjörðu svo vel að vera til viðtals, Már.

Ekki svona vinnubrögð, takk.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?