Þarna er skemmtileg frétt. Meira svona! Ég hef alltaf svolítið svag fyrir fljúgandi furðuhlutum eftir að ég horfði opinmynntur á hina dásamlegu sjónvarpsþætti FFH í sjónvarpinu kringum 1970.
Er ekki ástæða til endursýna þá? Ég er viss um að þó í þá daga hafi mér þótt þættirnir afar dramatískir og spennandi, þá myndu þeir núna líta út eins og hreinasta grín.
Eftir að FFH hvarf úr sjónvarpinu tókst mér ekki að viðhalda áhuga mínum á fljúgandi furðuhlutum. Enda virtust þeir breyta gjörsamlega um modus operandi.
Í staðinn fyrir að fljúga glæsilega um í himinhvolfinu og stríða flugvélum, þá virtust allar fréttir af fljúgandi furðuhlutum snúast um að þeir hefðu rænt fólki og gert á því ýmsar "tilraunir".
Ég skildi það nú aldrei. Af hverju ættu háþróaðar verur utan úr geimnum, milljónum ára á undan okkur að tækni, að þurfa að reyna einhverju fólki úti í bæ og pota í það málmtækjum til að "rannsaka" það?
Sérstaklega vegna þess að mér virtist það fólk, sem taldi sig hafa verið útvalið til þessara "rannsókna", yfirleitt ekki vera snjallasta fólkið á jörðinni - svo vægt sé nú til orða tekið.
Geimverurnar hefðu þá kannski átt að skoða fólk sem ögn meira væri í spunnið.
En þessir fljúgandi furðuhlutir sem náðust á mynd í Kína, þeir lofa góðu.
Þeir fljúga fallega um.
Ég er viss um að þetta eru sömu FFH og segir frá í nýjasta hefti SKAKKA TURNSINS. Þar er sagt frá furðuhlutum sem leynst hafa oní vötnum í Rússlandi.
Mjög sannfærandi allt saman.
Nú eru þeir komnir úr kafi og flognir til Kína.
Blogg
MEIRA SVONA!
07:59 › 8. september 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
