ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

KARLAGROBB SEÐLABANKASTJÓRA

13:02 › 7. september 2009


Hvaða karlagrobb er þetta í Má Guðmundssyni Seðlabankastjóra í viðtali við Reuters?

Það má kannski segja að það sé hluti af starfi Seðlabankastjóra að bera sig vel og einkum í útlöndum.

Tala ekki kjark úr þeim sem kynnu að vilja koma með peninga til landsins, eða yfirleitt versla eitthvað við okkur.

En mér er sama. Ég vona auðvitað að þetta sé rétt hjá Má, og hef út af fyrir sig ekki ástæðu til að ætla annað.

En mér þætti brýnna að hann úttalaði sig um af hverju hann er svona dæmalaust ánægður með peningastefnuna sem hann sjálfur smíðaði en klikkaði svo eftirminnilega hér síðustu árin.

Og sömuleiðis væri gott að fá skýringar á því af hverju margir málsmetandi hagfræðingar eru á því að nauðsynlegt sé að lækka stýrivexti hér strax, og afnema höftin hið bráðasta - en Seðlabankinn virðist þeirrar skoðun að fyrst gæti verið nauðsynlegt að hækka stýrivexti enn frekar!

Og herða höftin.

Hver hefur rétt fyrir sér?

Er nauðsynlegt að við sveiflumst eins og pendúll milli andstæðra skoðana, með tilheyrandi tilfinningaróti á þessum erfiðu tímum?

Már ætti að beita sér fyrir því að Seðlabankinn talaði við þjóð sína, áður en hann fer með karlagrobb í útlöndum.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?