Það virðist nokkuð ljóst að bæði Landsbankinn og Kaupþing munu skipta um nöfn þegar endurskipulagningu þeirra verður loksins lokið.
Nöfn þeirra eru ónýt eftir hrunið.
Glitnir er þegar búinn að skipta um nafn og heitir nú aftur Íslandsbanki.
Ég mun sjá heilmikið eftir nafni Landsbankans ef það verður að hverfa á braut. Alla mína tíð hef ég verið í viðskiptum við Landsbankann og notið þar hinnar bestu þjónustu.
Því þykir mér undarlega sárt ef gamli bankinn minn verður að skipta um nafn eftir hamfarirnar.
Til Kaupþings hef ég svo sem engar tilfinningar, en það er ljóst að bankinn verður að skipta um nafn svo fljótt sem auðið verður.
Það þarf ekki annað en rifja upp núverandi nafn hans í samhenginu "kaupthinking" til að gnísta í senn tönnum og skella upp úr.
Það er ekki góð bissnissímynd, trúi ég.
Mig minnir að ég hafi séð í blöðunum að Finnur Sveinbjörnsson bankastjóri Kaupþings hafi sagt að innan bankans væru menn þegar farnir að kasta á milli sín nokkrum nöfnum.
Það væri gaman að fá að heyra hugmyndir fólks á netinu um hvað Landsbankinn og Kaupþing gætu heitið héðan í frá.
Lumar fólk á góðum nöfnum á banka?
Blogg
HVAÐ EIGA NÝJU BANKARNIR AÐ HEITA?
11:01 › 7. september 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
