18:48 › 7. september 2009
Það er alltaf sama reisnin yfir íslensku þjóðkirkjunni.
Nú hefur nefnd á vegum kirkjunnar komist að þeirri niðurstöðu að séra Gunnar Björnsson hafi framið siðferðisbrot gegn tveimur barnungum stúlkum með kynferðislegum tilburðum sínum.
Gott og vel.
En hlýtur hann þá ekki að víkja umsvifalaust úr sókn sinni á Selfossi? Eins og sóknarnefndin þar bað jú sérstaklega um?
Nei!
Prestur á að sitja óáreittur áfram.
Hinar áreittu stúlkur geta örugglega bara flutt eitthvað burt, ef þær eru ekki sáttar við hann í kirkjunni sinni.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
