ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

STENDUR SIGURJÓN AÐ BAKI ARCTICA FINANCE?

14:01 › 6. september 2009




Um
daginn var ég hér á Trésmiðjunni að hneykslast á því
að fyrirtækið Arctica Finance skyldi hafa fengið meira en 100 milljónir króna
frá Orkuveitu Reykjavíkur fyrir að "finna" Magma Energy svo hægt væri
að selja því fyrirtæki hlut í HS Orku fyrir það sem sumir telja vera spottprís.


Þar
sem ég puðaði á hlaupabrautinni í Laugum í gær fór ég svo að hugsa málið aðeins
betur. Ég hafði líka fengið ábendingu um sérlega náin tengsl Arctica-manna við
Sigurjón Þ. Árnason, hinn fallna fyrrum bankastjóra Landsbankans.


Og
eftir að skoðað fyrirtækið Arctica Finance aðeins betur og velt vöngum, þá er ég
kominn að þeirri niðurstöðu að hinn fyrri pistill um málið hafi alls ekki verið
nógu harðorður.


Því
það virðist í alla staði svo forkastanlegt og allsendis óverjandi að opinber
stofnun eins og Orkuveita Reykjavíkur hafi verið að henda meira en 100 milljónum
af okkar peningum í "ráðgjöf" eins og þá sem Arctica Finance veitti.


Vera
kann að samkvæmt einhverjum launaskrám frá 2007 hafi verið "eðlilegt"
að greiða svo mikið fé fyrir þetta viðvik, sem þó er alls ekki ljóst í hverju fólst.


En
núna, þegar Orkuveitan eins og aðrar opinberar stofnanir, og eins og flestöll
fyrirtæki landsins, þarf að gæta ítrasta aðhalds, þá er svo sterkur
spillingarkeimur af þessari upphæð, að mann setur eiginlega hljóðan.


Og það
að Arctica Finance-menn skyldu hafa geð í sér til að rukka fyrirtæki í eigu þrautpínds
almennings á Íslandi um slíka upphæð sýnir að græðgi bankamanna hefur síst
minnkað.


Þeir
hafa ekkert lært og munu áfram krækja í hverja þá krónu sem býðst - og ef vinir
þeirra, menn í réttu klíkunum og stjórnmálaflokkunum, eru við völd, þá munu þeir
fá þá krónu.


Arctica
Finance er í raun hin gamla "Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans".


Flaggskip
gamla Landsbankans í peningabólunni. Stolt Sigurjóns Þ. Árnasonar, mannsins sem
át gullið.


Allir
sjö starfsmenn Arctica Finance unnu hjá Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans þangað
til í október í fyrra þegar hrunið varð.


Stefán
Þór Bjarnason lögfræðingur er framkvæmdastjóri Arctica Finance. Hann var forstöðumaður
Fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans á Íslandi þangað í október í fyrra. Í ferilskrá
hans á vefsíðu Arctica Finance segir: "Á þessum tíma [frá 1999] leiddi
Stefán eða tók þátt í flestum af helstu fyrirtækjaráðgjafarverkefnum
bankans."


Jón
Þór Sigurvinsson verkfræðingur, sem hefur sinnt mjög fyrirtækjum í orkuiðnaði,
Gunnar Jóhannsson verkfræðingur og verðbréfamiðlari, Aðalsteinn Jónsson
byggingaverkfræðingur og Baldur Stefánsson stjórnmála- og hagfræðingur unnu líka
allir hjá Fyrirtækjaráðgjöfinni. Baldur var hér á árum áður kunnur sem einn af
forsprökkum listahópsins/hljómsveitarinnar Gusgus og einn upphafsmanna
Icelandic Airwaves og gerði um þær mundir margt skemmtilegt.


Sérstaka
athygli vekur að tveir starfsmanna Arctica Finance eru meðal þeirra sem fylgdu
Sigurjóni Þ. Árnasyni úr Búnaðarbankanum árið 2003 yfir til Landsbankans.


Það
var á sínum tíma talið meiriháttar skúbb fyrir Landsbankann að þessum
Ung-Tyrkjum Búnaðarbankans skyldi "rænt" yfir til Landsbankans, en nú
er komið í ljós að maðkur var í mysunni.


Þessi
"átök" bankanna voru bara blekkingarvefur.


Síðasta
verk Sigurjóns í Búnaðarbankanum var að annast lán sem Búnaðarbankinn var svo
snotur að veita Björgólfsfeðgum svo þeir gætu keypt Landsbankann og verið
"í kallfæri" við Sjálfstæðisflokkinn.


Og
svo Kjartan Gunnarsson gæti áfram verið sem kónguló í bankanum.


Lán
þetta var ekki ljóstrað upp um á sínum tíma, því þá áttum við að halda að Björgólfsfeðgar
kæmu með fulla vasa fjár frá Rússlandi og greiddu Landsbankann nánast út í hönd.


Í
staðinn lánaði Landsbankinn framsóknarmönnum fyrir Búnaðarbankanum.


En örfáum
dögum eða vikum eftir að Sigurjón annaðist leynilánið til Björgólfsfeðga réðu þeir
hann og vini hans til Landsbankans.


Sigurjón
varð bankastjóri og stýrði hinni rómuðu útrás Landsbankans sem endaði svo
fagurlega með algjöru hruni.


Tveir
þeirra sem fylgdu honum yfir hreiðruðu um sig í Fyrirtækjaráðgjöfinni og eru núna
starfsmenn Arctica Finance.


Ólafur
Þór Finsen lögfræðingur og Bjarni Þórður Bjarnason vélaverkfræðingur og MBA.


Einkum
mun Bjarni Þórður hafa verið mjög handgenginn Sigurjóni Þ. Árnasyni og raunar
einn af nánustu samstarfsmönnum og vinum hans gegnum tíðina.


Til
dæmis félagi hans í Vöku, samtökum sjálfstæðismanna í stúdentapólitíkinni.


Þar
sem Guðlaugur Þór Þórðarson var líka niðurkominn, mikill vinur Sigurjóns.


Guðlaugur
Þór var lengi viðloðandi Orkuveituna eins og allir vita.


Þessir
sjö menn, starfsmenn Arctica Finance og áður Fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans, það
eru mennirnir sem telja sanngjarnt og eðlilegt að nauðum staddir landar þeirra
borgi þeim um 12 milljónir á mann fyrir að "finna" Magma Energy vestur í
Kanada.


Og þessum
sjö mönnum telja stjórnarmenn Orkuveitunnar líka alveg sjálfsagt að borga þessa
upphæð.


Af því
þetta eru þeirra menn.


En
er Arctica Finance allt þar sem það er séð? Því hefur verið hvíslað að mér að á
bak við hina sjö starfsmenn fyrirtækisins standi áttundi maðurinn.


Sigurjón
Þ. Árnason sjálfur.


Ég
veit ekki hvort það er satt, ég tek það fram.


En það
væri kannski ekki mjög óeðlilegt að "ráðgjafarnir" í Arctica Finance leituðu
til meistara síns um "ráðgjöf".


Þó
ekki væri nema í að rukka!


En mikið djöfull þætti mér blóðugt ef að eftir allt sem á undan er gengið væru sjálfstæðismennirnir og framsóknarmennirnir í stjórn Orkuveitunnar ekki aðeins með sitt venjulega spillingarmakk, heldur beinlínis að veita peningum almennings til Sigurjóns Þ. Árnasonar.





ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?