ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

SKAMMASTU ÞÍN, TRYGGVI ÞÓR HERBERTSSON!

09:06 › 5. september 2009


Ég tek undir hvert orð hjá Teiti Atlasyni hér. Þessi pistill hér eftir Tryggva Þór Herbertsson er eitthvert aumasta lýðskrum sem ég hef lengi séð, svo ég noti orð sem honum sjálfum er tamt.

Ef Tryggi Þór Herbertsson vogar sér að gefa í skyn að þeir erfiðleikar, sem við stöndum nú frammi fyrir með niðurskurði og allskonar volæði, séu einhverri eyðslugleði "vinstri manna" að kenna, þá er kominn tími til að rassskella þann unga mann.

Og það er ekki guðlast að láta sér detta í hug að álfyrirtæki kunni að þola svolitla skattahækkun eins og Björn Valur Gíslason hefur nefnt, en Tryggvi Þór gagnrýnir af hroka og yfirlæti þess sem allt þykist vita.

Tryggi Þór Herbertsson söng útrásinni lof og dýrð þegar hann var hjá háskólanum.

Þeirri útrás sem flokksbræður hans í Sjálfstæðisflokknum gerðu mögulega.

Svo ætlaði hann að græða á henni sjálfur með því að stýra ruglbanka á vegum útrásarvíkinga, og fékk risastórt kúlulán og allt.

Sem hann þurfti náttúrlega ekki að borga.

Vafalaust hefur hann grillað heilmikið á kvöldin meðan gleðin stóð sem hæst.

Nú þegar einkageirinn er hruninn og Tryggvi Þór getur ekki grillað í bili, þá skríður hann undir pilsfald ríkisins eins og svo títt er um frjálshyggjumenn, og þykist þess umkominn að ætla að kenna "vinstri mönnum" um erfiðleikana.

Ég skal ekki útiloka að í krafti hagfræðiþekkingar sinnar hafi Tryggvi Þór þrátt fyrir allt eitthvað fram að færa sem gæti dugað til að hjálpa til við að reisa landið úr rústum flokksbræðra hans og útrásarfélaga.

En það á Tryggvi Þór þá að bera fram af hógværð og lítillæti, ekki með hroka og yfirlæti og lýðskrumi.

En sú virðist ætla að vera leið sjálfstæðismanna til að reyna að losa sig úr fangbrögðum sögunnar.

Kenna öðrum um þann forarpytt sem flokkurinn gróf.

Standa sjálfir eins og hvítþvegnar afturbatapíkur á bakkanum.

Ja, svei!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?