ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ÖMURLEG MÁLSSÓKN

14:01 › 5. september 2009


Ömurlegt er að horfa upp á málssókn Björgólfanna og Karls Wernerssonar gegn starfsmönnum Stöðvar 2 vegna fréttar um peningaflutninga frá Straumi inná einhverja leynireikninga.

Þeir þremenningar brugðust svo hart við fréttinni að ég er alveg til í að trúa því að þeir hafi rétt fyrir sér og fréttin - að minnsta kosti eins og hún var sögð - kunni að vera röng.

Ég hef ekki hugmynd um það, en annað eins gerist nú við aðstæður eins og hér hafa ríkt síðustu tvö misseri.

Þótt fjölmiðlarnir geri sitt besta munu alltaf slæðast með rangar fréttir í því fréttaflóði sem hér hefur gengið yfir.

Hafi fréttin verið röng, ætti þremenningunum að vera í lófa lagið að sýna fram á það.

Yfirleitt eiga menn náttúrlega ekki að þurfa að "sanna sakleysi sitt", heldur verða þeir sem bera fram sakir að bera í stakk búnir til að sanna sakirnar.

En stundum eru aðstæður svo aðbrigðilegar að maður verður að taka tillit til þess.

Og ef þremenningarnir ætla í mál út af þessu, þá finnst mér eiginlega að þeir séu um leið að segja: Allt annað sem um okkur hefur verið sagt í fjölmiðlum var satt. Loksins stóðum við fjölmiðlana að ýkjum eða mögulegum rangfærslum, og þá ætlum við sko í mál!!

Voru það lögfræðingar sem öttu þremenningunum út í þessa málssókn, eða hvað?

Og það uppátæki Karls Wernerssonar að fara ekki einungis í mál við fréttastjóra Stöðvar 2 og fréttamanninn sem var með fréttina um málið, heldur líka Telmu Tómasson fréttaþul, sem gerði ekki annað en lesa inngang að fréttinni, það er blátt áfram andstyggilegt.

Augljós tilraun til að fæla fjölmiðlamenn frá gagnrýnni umfjöllun um Karl og hans málefni.





ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?