ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

HVER HLÆR NÚ AÐ ÖYGARD?

12:25 › 5. september 2009


Fréttir um að norskir fjárfestar séu að undirbúa að fjárfesta hér fyrir tugi milljarða eru auðvitað ánægjulegar.

Við hljótum að taka fagnandi hverri krónu sem kemur erlendis frá - svo fremi sem ekki sé verið að selja eignir vorar á brunaútsölu.

Það getur verið matsatriði hvort um slíkt er að ræða, eins og ljóslega er komið í ljós varðandi kaup Magma Energy á hlut í HS Orku. En ef við getum treyst einhverjum, þá eru það líklega Norðmenn.

Þó víst séu þeir séðir kaupsýslumenn!

Og í ljósi þess að það var greinilega Svein Harald Öygard fyrrum Seðlabankastjóri sem hafði frumkvæði að eða milligöngu um hingaðkomu hinna norsku fjárfesta, þá rifjast upp fyrir mér sá skellihlátur sem mætti spælingum Davíðs Oddssonar í hans garð á landsfundi Sjálfstæðisflokksins á útmánuðum.

Nú sýnist mér að Svein Harald Öygard gæti orðið gagnlegri Íslendingum en margir þeirra sem hæst hlógu á landsfundinum.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?