Stöð 2 sagði frá því í gær að fyrirtækið Arctica Finance hefði fengið meira en hundrað milljónir að launum fyrir að "finna" Magma Energy og fá fyrirtækið til að óska eftir hlut Orkuveitunnar í HS Orku.
Eyjan tók fréttina saman hér.
Án efa munu "sérfræðingar" hver um annan þveran keppast um að sýna okkur fram á að það sé í alla staði eðlilegt að borga slíkar upphæðir fyrir "ráðgjöf".
Já, þetta hafi bara verið algjört lágmark!
En þetta hljómar samt undarlega. Á ekki orka á Íslandi að vera svona ægilega eftirsótt vara? Af hverju þarf þá að borga millilið meira en 100 milljónir fyrir að "finna kaupanda"?
Arctica Finance er lítið félag fyrrverandi starfsmanna Landsbankans. Ég þekki þá ekki en það hvarflar ekki að mér annað en þetta séu hinir mætustu menn.
Hins vegar verð ég að viðurkenna að ég fitjaði svolítið upp á trýnið þegar fyrirtæki, sem fær meira en 100 milljónir í ráðgjöf frá opinberu fyrirtæki, lýsir sér svona á heimasíðu sinni:
"Starfsmenn Arctica Finance hafa allir víðtæka og áralanga reynslu af
ráðgjöf af því tagi er félagið býður upp á og hafa komið einarðlega og
giftusamlega að mörgum af stærstum viðskiptum sem átt hafa sér stað á
Íslandi síðustu ár."
Á ensku hljómar síðasti hlutinn svona: "... successful and proud contributors to many of the largest transactions that have taken place in Iceland."
Þegar "einarðlega og giftusamlega" hefur verið "komið að ... mörgum af stærstu viðskiptum sem átt hafa sér stað á Íslandi síðustu ár", þá langar mig að vita meira.
Hver eru þessi viðskipti? Eru einhver af stærstu viðskiptum Íslands síðustu ár þannig að unnt sé að lýsa þeim sem "giftusamlegum"?
Eða er þetta bara prat?
Blogg
"EINARÐLEG OG GIFTUSAMLEG VIÐSKIPTI?"
10:13 › 4. september 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
