ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

HEILAÞVEGNIR OFSTÆKISMENN??

10:48 › 3. september 2009


Heimdellingar kusu sér formann í gær.

Þeir um það.

Hins vegar legg ég til að fólk leggi á minnið part úr "stjórnmálaályktun" þessa frægasta félags Sjálfstæðisflokksins.

Þar er því nefnilega algjörlega hafnað að frjálshyggjan, sem hefur verið trúaratriði Heimdallar mjög lengi, hafi á nokkurn hátt átt sök á efnahagshruninu á Íslandi.

Nei, þvert á móti, efnahagskreppan eigi sér rætur í "opinberum afskiptum af frjálsum markaði".

Hér ætla ég að slá inn fjögur upphrópunarmerki!!!!

Að opinber afskipti af frjálsum markaði eigi sök á hruninu er svo geggjuð hugmynd að ég held að menn þurfi að vera staurblindir og heyrnarlausir til að voga sér að halda þessu fram.

Eða fullkomlega heilaþvegnir ofstækismenn.

Er það raunin um Heimdellinga?

Alla vega mælist ég til þess að fólk gleymi þessu ekki. Þessi fáheyrða niðurstaða sýnir að sjálfstæðismenn hafa ekkert lært og öllu gleymt.

Og þeir munu taka upp frjálshyggjuþráðinn aftur, undireins og þeir fá minnstu aðstöðu til.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?