ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

LYGIN UM HANA LUCY

07:54 › 29. september 2009


Meðan ég melti það hugarfar sem fær íslenska bankamenn til að krefjast þess að fá ofurbónusana sína greidda óhikað þó bankarnir þeirra séu gjaldþrota, samanber þessa makalausu frétt DV hér, þá staldra ég raunar lengur við fréttina af andláti hennar Lucy.

Sjá þessa frétt hérna.

Með fullri virðingu fyrir Lucy O´Donnell sálugu, sem hefur eflaust haft gaman af því að vera kennd við hið magnaða lag Bítlanna, þá er þetta nú samt bara tilbúningur, runninn undan rifjum John Lennons.

Lagið Lucy in the Sky with Diamonds er alveg augljóslega lýsing á LSD-trippi og engu öðru. Textinn er reyndar frábær fantasía um liti og form; John Lennon tókst sjaldnar betur upp.

En þótt fantasía af þessu tagi sé vissulega vel hugsanleg án LSD, og margir hafa sett saman enn mikilfenglegri hugarfantasíur án þess að styðjast við hækjur ofskynjunarlyfja, þá er þó staðreynd að Lennon var á þessum tíma að éta LSD í allstórum stíl.

Eins og er líka alveg borðliggjandi í titli lagsins.

Þegar lagið var hins vegar komið út og gengið var á Lennon, og hann spurður hvort hann væri að hvetja unga fólkið til að taka þetta stórhættulega ofskynjunarefni (sem hefur vel að merkja orðið ótal mörgum að andlegum bana), þá þorði hann ekki að standa við að lagið væri um LSD-vímu.

Og spann upp söguna um Lucy litlu vinkonu Julians, sonar Lennons, sem strákur átti að hafa teiknað mynd af með demöntum í himninum.

Sú mynd hefur aldrei sést, þótt vænta megi þess að Lennon hefði varðveitt hana ef hún hefði orðið kveikja að Bítlalagi.

En Lennon var líka hraðlyginn þegar svo bar undir.

Það er vel að merkja misskilningur sem fram kemur í fréttinni að þessi skýring á nafni lagsins hafi fyrst komið fram fyrir eitthvað um tveim árum af Lucy O´Donnell. Sagan um Lucy vinkonu Julians kom fram strax og lagið var gefið út á plötu, og var sett fram af Lennon sjálfum.

Þess má svo geta árið 1974 fundust leifar af frumstæðum apamanni í Eþíópíu og vísindamenn þóttust strax vita að þetta væri stórmerkilegur fundur.

Sem kom á daginn því þetta reyndist mikilvægur hlekkur í þróunarsögu mannsins. Svolítil apamannskona sem var á dögum fyrir 3.2 milljónum ára og er e.t.v. formóðir okkar allra.

Vísindamennirnir skírðu hana Lucy af því þeir sögðu að Lucy in the Sky with Diamonds hefði hljómað hvað eftir annað í segulbandi tjaldbúða þeirra meðan þeir voru að búa um beinaleifarnar.

Svona er sú Lucy talin hafa litið út. Hæ amma!




Og hér er Lucy á himnum með demöntum. Þetta er óneitanlega frábært lag.



Textinn er svona, eða í þessu tilfelli má alveg kalla þetta ljóð:

Picture yourself in a boat on a river, 
With tangerine trees and marmalade skies
Somebody calls you, you answer quite slowly, 
A girl with kaleidoscope eyes.

Cellophane flowers of yellow and green, 
Towering over your head.
Look for the girl with the sun in her eyes, 
And she's gone.

Lucy in the sky with diamonds
Lucy in the sky with diamonds
Lucy in the sky with diamonds
Ahh... 

Follow her down to a bridge by a fountain
Where rocking horse people eat marshmellow pies, 
Everyone smiles as you drift past the flowers, 
That grow so incredibly high.

Newspaper taxis appear on the shore, 
Waiting to take you away.
Climb in the back with your head in the clouds, 
And you're gone.

Lucy in the sky with diamonds
Lucy in the sky with diamonds
Lucy in the sky with diamonds
Ahh... 

Picture yourself on a train in a station, 
With plasticine porters with looking glass ties, 
Suddenly someone is there at the turnstyle, 
The girl with the kaleidoscope eyes.

Lucy in the sky with diamonds
Lucy in the sky with diamonds
Lucy in the sky with diamonds
Ahh...







ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?