ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

NEYÐARÓP ÚR AFTURSÆTINU

08:01 › 28. september 2009


Skólavörðustígurinn klukkan 7.55 á mánudagsmorgni.

Volvóinn keyrir rólega í átt að Hallgrímskirkju á leið í Austurbæjarskólann.

Það er haustmorgunn eins og þeir gerast bestir í Reykjavík, kyrrlátur og fagur.

Í útvarpinu er stillt á Gullbylgjuna. Þar er eitthvert fönk-lag sem ég man ekki hvað heitir. Alveg bærilegt lag, finnst mér, en úr aftursætinu berst hvöss skipun frá þeim tíu ára:

"Pabbi, skipta! Þetta er ömurlegt lag."

Á Rás eitt er eitthvert huggulegt lag sem mér gefst ekki einu sinni tími til að athuga hvað er.

"Nei takk! Ekki þetta."

Á Rás tvö eru Freyr og Lára í krampakasti af hlátri.

"Nei! Ég þoli ekki að hlusta á fólk hlæja í útvarpinu."

Á Bylgjunni heyrist rödd Skúla Helgasonar alþingismanns í viðtali:

"... og vegna þessa Icesave-máls ..."

Algjört allsnakið neyðaróp berst úr aftursætinu.

"Nei!!!! Ekki Icesave núna!!!!"

Heil kynslóð íslenskra barna og ungmenna á eftir að fá martraðir þar sem "þetta Icesave-mál" sækir að þeim í svefni og vill gera þeim illt.

Það getum við þakkað ekki aðeins þeim bankamönnum Landsbankans sem komu þessum reikningum af stað, heldur líka þeim stjórnmálamönnum og embættismönnum sem létu þennan hrylling viðgangast án þess að spyrna við fæti.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?