14:40 › 28. september 2009
Einhverjir eru að tala um þjóðstjórn.
Halda að þá leysist allt og verði voðalega auðvelt.
Ég verð að viðurkenna að ég skil ekki alveg hverju þjóðstjórn á að áorka.
Eru menn að viðurkenna þá gömlu tuggu að ekki sé hægt að stjórna landinu án Sjálfstæðisflokksins?
Er sú tugga ekki fullreynd, takk fyrir?
Eða eru menn að meina að það hamli á einhvern hátt lausnum í núverandi ástandi að sjálfstæðismenn séu ekki í stjórn?
Það er að segja að þeir hjálpi ekki til eftir bestu getu, en muni taka til hendinni ef þeir komast aftur í valdastóla?
Er það þá æskilegt?


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
