ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ÓGEÐSLEGT!

22:34 › 27. september 2009


Þetta hér er eitthvað það ógeðslegasta sem ég hef lesið lengi.
Flott trix með flugvélina, ha?

Jafnvel fyrir hrunið, sem Sjálfstæðisflokkurinn olli ásamt vinum sínum í stétt auðmanna og bankamanna (þeir eru allir með tölu sjálfstæðismenn, fyrir utan nokkra framsóknarmenn), þá hefði þetta verið stórkostlega hneykslanlegt.

Eftir hrunið er þetta bara ógeðslegt.

Og manni fallast hendur yfir svona aðförum.

Kann þetta fólk alls ekki að skammast sín?

Mér er hjartanlega sama hver er formaður SUS. Það eru aðfarirnar sem valda því að manni rennur kalt vatn milli skinns og hörunds.

Svo á þessi maður víst að heita blaðamaður.

Sem á að leita sannleikans.

En þetta er kynslóðin sem Davíð og Hannes eru búnir að ala upp í Sjálfstæðisflokknum.

Huggulegt, eða hitt þó heldur.


- - - - -

Rétt skal vera rétt. Ungi maðurinn er víst ekki blaðamaður, eins og fyrstu fregnir bentu til, heldur starfsmaður á tölvudeild mbl.is að því er virðist.




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?